Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, kannaðist ekkert við samkomulag um að ljúka umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Alþingi, en forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, hafði sagt í samtali við Vísi að henni virtist samkomulag um slíkt vera í höfn.
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segir tvennt skýra þennan misskilning. Annars vegar þá venju Miðflokksins að segja sem minnst á fundum þingflokksformanna og hins vegar það að forseti Alþingis hafi ranglega túlkað þögn sem samþykki.
Björn Leví skrifar á Facebook:
„Þingflokksformaður Miðflokksins sagði ekkert á þingflokksformannafundi og af því að það komu engar mótbárur þá túlkaði forseti þingsins það sem samþykki af hálfu allra. Þetta er mjög algengt, sérstaklega hjá Miðflokknum, að þegja bara þegar verið er að tala um samkomulag um eitthvað – svo segja þeir eftir á „við samþykktum ekkert“ – af því að þögn er ekki sama og samþykki. Það er fáránlegt hversu erfitt það er að ganga á eftir þeim þarna í Miðflokknum með svona hluti – þetta var alltaf svona í þinglokum. Þeir sögðu ekkert, þó þeir væru þráspurðir fram og til baka hvaða skoðun þeir hefðu á málunum. Þetta eru einfaldlega mistök hjá þingforseta þar sem þögn er ekki sama og samþykki. En það er líka bara óheiðarlegt að segja ekkert þegar spurt er hvort samþykki liggi fyrir. Það væri heiðarlegt að segja nei í staðinn fyrir að láta svona.“
Þannig að staðan sé sú að það sé komið samkomulag við alla nema Miðflokkinn og líklega sé það þannig að fólk nenni ekki að „elta vesenið í þeim“.
„Þannig að þau telja hann ekki með þegar verið er að tala um samþykki fyrir einhverju af því að það er aldrei hægt að fá þá til þess að taka afstöðu í svona.“
Björn nefnir dæmi frá tíma sínum á þingi um að eitt sinn hafi Píratar krafið forseta Alþingis um undirritað samkomulag um þinglok þar sem þáverandi þingforseti hafi ítrekað munað samkomulagið öðruvísi en aðrir.
„Það var endalaust óþolandi hvernig samkomulag var skáldað aftur í tímann.“
Pírötum tókst að fá þetta í gegn en þá skrifaði formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, á skjalið: „Samkvæmt samtali, SDG“ en með því tókst honum að komast hjá því að skrifa undir það sem stóð skrifað á skjalið.
„Það er alveg meiriháttar hversu ótrúlega flókið var að fá Miðflokkinn til þess að vera í einhvers konar samtali um eitthvað. Taktíkin hjá þeim var að segja ekki neitt þangað til á allra síðustu stundu, að þeir muldruðu eitthvað þegar allir aðrir voru að búast við að þinglok væru komin.
Þetta er svona klassísk „búa til tímaþröng fyrir aðra til þess að knýja þá í að semja“ – kannski alveg samningatækni sem virkar að einhverju leyti en hún gerir það að verkum að það þolir þig enginn.“