Einar Dagur Brynjarsson ætlar sér að hjóla hringinn í kringum Ísland til styrktar Barnaspítala Hringsins.
Fyrir tveimur árum hjólaði hann til Akureyrar frá Reykjavík, einnig til styrktar Barnaspítala Hringsins, en amma Einars er einmitt Hringskona.
Hann leggur af stað seint þann 17. júní og áætlar að ferðalagið muni taka tíu daga. Þrjár vinkonur hans ætla að fylgja honum á bíl og afi hans verður á eftir honum í húsbíl. Brynjar ætlar þó að gista í tjaldi.
Fær lánað hjól frá Lauf
Bónus styrkir Einar, sem var að klára fyrsta árið sitt í Versló, í ævintýri sínu með nauðsynjavörum og mat og íslenski hjólaframleiðandinn Lauf lánar honum hjól fyrir ferðina.
Þeir sem vilja styrkja framlag Einars geta fundið upplýsingar hér fyrir neðan.
Einar biður áhugasama um að láta kvittunina #Hringur Hringsins fylgja með styrktarfærslum.
Kennitala: 640169-4949
Banki: 0101-26-054506