Veðrið í dag stjórnast af minnkandi lægð við Noreg og áttin norðleg eða breytileg með vindhraða á bilinu 5 til 13 metrar á sekúndu.
Víða verður bjart með köflum en lítilsháttar væta norðaustan og austan til fram eftir morgni og aftur í kvöld. Hiti 9 til 18 stig yfir daginn, hlýjast sunnan heiða.
Það má búast við heldur hægari vindi á morgun. Þá verður skýjað á austurhelmingi landsins og dálítil væta öðru hverju en bjartara um landið vestanvert. Þar má þó gera ráð fyrir einhverjum síðdegisskúrum.
Hiti frá 6 stigum við norður- og austurströndina en upp í 17 stig þar sem best lætur á Suðvestur- og Vesturlandi.
Á miðvikudag er útlit fyrir áframhaldandi norðlæga átt með súld eða rigningu og svölu veðri á Norður- og Austurlandi en úrkomulítið og mildara sunnan og vestan til.