HinÓperan er nýtt íslenskt óperukompaní sem hefur það að markmiði að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu, leggur áherslu á sögur af hinsegin fólki og að skapa hinsegin listafólki tækifæri til að starfa við óperu, hvort sem er sem flytjendur, listrænir stjórnendur eða aðrir þátttakendur.
Fjöldi fólks mætti á frumsýninguna og þar á meðal var Ricky Ian Gordon, tónskáldið á bak við verkið. Hann samdi það með textahöfundinum Royce Vavrek en þetta er í fyrsta sinn sem óperan er sett upp í Evrópu og jafnframt fyrsta uppfærsla hinÓperunnar. Nánari upplýsingar um sýninguna má finna hér og að neðan má sjá vel valdar myndir af gestum: