„Við verðum að vera vakandi fyrir hættunum og þessi árvekni verður að beinast að öllum, líka okkur fullorðna fólkinu,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum á Íslandi, í aðsendri grein á Vísi.
Í grein sinni vekur hún athygli á því að að í dag, 2. júní, sé alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um öfgakenndan hita og hvað við getum gert til að verjast honum.
Hildur bendir á að Íslendingar kunni svo sannarlega að pakka í tösku fyrir sumarfríið erlendis og flest okkar velji að komast á heitari slóðir eftir veturinn hér á landi.
Getur verið lífshættuleg
Hún nefnir að flest okkar séu sem betur fer orðin meðvituð um að við þurfum að verja okkur fyrir sólinni.
„Þá dettur okkur auðvitað fyrst í hug að pakka góðum brúsa af sólarvörn og maka svo vel á okkur í strandstólnum. Svo setjum við hatta á litlu börnin og pössum að þau dvelji sem mest í skugganum og fái nóg að drekka af albesta svaladrykknum, vatni, en látum eins og okkar fullorðni kroppur geti ekki fengið nóg af „þessari gulu“. Helst viljum við svo sum hver skála við hana (jafnvel dagana langa) í áfengum drykkjum.”
Hildur kemur sér svo að lexíunni sem hún hvetur alla til að taka með sér í sólarlandafríið:
„Sólin getur verið lífshættuleg. Hitabylgjum fer fjölgandi, þær vara lengur og eru heitari, og þeim erum við, Íslendingarnir sólþyrstu, alls ekki vön að þurfa að verjast. En við verðum að gera það. Við verðum að vera vakandi fyrir hættunum og þessi árvekni verður að beinast að öllum, líka okkur fullorðna fólkinu.”
Hildur segir að hitaslag geti verið ein afleiðing þess að dvelja í öfgakenndum hita og drukknun sé það einnig.
„Og þar kemur áfengi, sem skerðir dómgreind okkar og getur valdið sinnuleysi, oft við sögu,“ segir hún.
Hafðu þessi atriði í huga
Þetta er í fimmta sinn sem 2. júní er helgaður þessari vitundarvakningu og segir Hildur að Rauði krossinn vilji gjarnan vekja á henni góða athygli.
„Þótt öfgakenndar hitabylgjur séu ekki þekktar hér á landi þá nálgast Íslendingar alveg örugglega heimsmet (miðað við höfðatölu!) í sólarlandaferðum. Og þegar við höfum hrist af okkur snjóinn, tekið af okkur mannbroddana og lambhúshettuna þá eigum við til að gleyma því að hiti getur verið okkar versti óvinur.”
Hvetur Hildur ferðalanga sem hyggja á sólarlandaferðir að hafa eftirfarandi atriði í huga:
- Forðastu að vera í beinni sól á heitasta tíma dagsins. Ef þú kemst ekki hjá því að vera á ferli skaltu hvíla þig reglulega í skugga.
- Berðu á þig sólarvörn og vertu í langerma, léttum fatnaði með hatt á höfði.
- Settu á þig sólgleraugu.
- Gættu þess að drekka nóg af vatni og forðastu áfengi.
- Fylgstu vel með börnum og eldra fólki.Kynntu þér einkenni hitaslags. Og athugaðu: Ef við bregðumst ekki við fyrstu einkennum hitaslags getur það orðið alvarlegt og jafnvel lífshættulegt ástand!
Hildur segir að lokum að eitt það allra mikilvægasta sem við tökum með okkur í fríið sé þekking á því hvernig við getum varið okkur fyrir hitanum. „Það er kannski ekki það allra skemmtilegasta við ferðalagið en það gæti bjargað lífi okkar.“