Hildur boðar til fundar í Viðey
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, hefur boðað til blaðamannafundar í Viðey í dag. Rúm vika er síðan flokkur hennar vann stóran sigur í borgarstjórnarkosningum og hefur hún haldið spilunum þétt að sér síðan.
Draga mun til tíðinda í dag í borgarstjórn Reykjavíkur en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, hefur boðað til blaðamannafundar í Viðey fyrir hádegi. Rúm vika er síðan flokkur hennar vann sigur í borgarstjórnarkosningum og fékk 9 fulltrúa kjörna.
Lítið hefur hins vegar spurst út um meirihlutaviðræður síðan og Hildur hefur haldið spilunum þétt að sér.
Kostirnir sem hún hefur þó nefnt eru tveir og teygja sig mislangt að miðjunni. Sjálfstæðisflokkur gæti myndað meirihluta með Miðflokki en samanlagt hafa flokkarnir 12 fulltrúa af 23 í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn gæti líka myndað meirihluta með tveimur fulltrúum Viðreisnar og einum fulltrúa Framsóknar og náð jafn stórum meirihluta.
Rúmur meirihluti þessara fjögurra flokka er þó úr myndinni, þar sem Viðreisn hefur útilokað samstarf með Miðflokknum.
Staða Hildar í meirihlutaviðræðum þykir sterk en flokkurinn er langstærstur þeirra sem koma til greina í meirihluta. Kosningaloforð hennar voru bæði mörg og sum hver nákvæm, og sett fram sem tímasett aðgerðaráætlun, en ekki liggur fyrir hversu mörg þeirra rata inn í meirihlutasáttmála.