Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni segir báða kosti mögulegs meirihluta í borgarstjórn góða: þriggja hluta meirihluta með Viðreisn og Sjálfstæðisflokki, og tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut níu borgarfulltrúa og er því með pálmann í höndunum fyrir meirihlutaviðræður. Miðflokkurinn fékk þrjá menn, Viðreisn tvo og Framsóknarflokkurinn einn.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir flokkinn hafa náð draumaniðurstöðu. Hún eigi eftir að setjast niður með frambjóðendahópnum og kosningastjórninni og spá í spilin.
„Það eru auðvitað tveir mjög augljósir kostir á borðinu um meirihlutasamstarf þannig að við þurfum aðeins að ráða ráðum okkar,“ segir Hildur.
Hvort hugnast þér betur, þriggja flokka samstarf með Viðreisn og Framsókn eða tveggja flokka með Miðflokki?
„Ég held bara að báðir kostir geti verið góðir. Nú þurfum við bara að vega og meta hvar við teljum okkur ná mestum árangri fyrir borgarbúa, í hvaða hópum við sjáum fyrir okkur að geti ríkt mest traust. Það skiptir máli þegar maður er að mynda svona samstarf að það sé traust á milli aðila,“ segir Hildur.
„Og svo myndi ég vilja að við gætum skapað svolítið breiða sátt um borgina okkar og ég myndi leggja áherslu á það í nýjum meirihluta að við myndum reyna að ná borgarbúum svolitið saman, lægja öldur, borgarmál hafa verið í miklum átakagír og þau þurfa ekki að vera það ef við bara hlustum á íbúana.“
Málefnaleg samleið með öllum þremur — vill borgarstjórastólinn
Hildur segir Sjálfstæðisflokkinn eiga málefnalega samleið með öllum þessum flokkum og nefnir þar m.a. að þeir vilji allir taka til í rekstri borgarinnar og séu allir opnir fyrir nýjum leiðum í leikskólamálum.
Spurð út í borgarstjórastólinn segist hún ekki vera í borgarspólitík með það að markmiði heldur skipti málefnin mestu. Hins vegar sé það sé eðlilegt að skipstjórinn í nýjum meirihluta komi úr stærsta flokknum.
Hægt er að horfa á viðtalið við Hildi í heild í spilaranum hér að neðan. Þar er einnig rætt við oddvita þeirra flokka sem orðaðir eru við meirihlutasamstarfið með Sjálfstæðisflokknum, þau Björgu Magnúsdóttur frá Viðreisn, Ara Edwald Frá Miðflokknum og Einar Þorsteinsson frá Framsókn.