Bærinn Björg í Köldukinn í Þingeyjarsveit lenti hvað verst í aurskriðum sem féllu í október 2021. Nánast öll hlíðin fyrir ofan bæinn hljóp fram og olli miklu tjóni á túnum. Minnstu munaði að skriðurnar lentu á fjósinu.
Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi á Björgum, tilkynnti á samfélagsmiðlum fyrir helgi að hún væri að heyja ysta túnið í fyrsta sinn síðan skriðurnar féllu.
„Þetta er lokahnykkurinn núna að ná að slá aftur Brekkuskákina, sem er túnið sem er næst fjallinu. Uppskeran var reyndar ekkert rosa mikil en þetta var svo mikill áfangasigur að ná síðasta túninu sem við höfum ekki náð að slá eða hirða síðan 2021,“ segir Jóna Björg.
Þolinmæði og smá þrjóska skilaði árangri
Heyskapur hefur gengið vel í Köldukinn eftir vætusamt vor en góðviðrisdagar hafa verið margir upp á síðkastið og sprettan eftir því. Að sögn Jónu kom aldrei neitt annað til greina en að rækta landið á nýjan leik eftir áföllin haustið 2021.
„Já, það verður að halda þessu í rækt. Vissulega var þetta stundum – þetta er þannig jarðvegur að það er erfitt að fara um þetta. Það var búið að festa nánast öll tæki bæjarins í þessari soppu. En það er þessi þolinmæði eða kannski smá þrjóska sem skilaði þessu myndi ég segja,“ segir Jóna.
Áfanganum var fagnað að hætti hússins. „Við föttuðum þetta eiginlega ekki fyrr en eftir á – Já, þetta er síðasta túnið þarna, er það komið undan?“ segir Jóna.
„Þarna erum við búin að skrá uppskeru og fá rúllur af þessu túni. Við erum svona að reyna að fagna þessu aðeins, við skáluðum og reyndum að halda aðeins upp á þennan áfanga þar sem þetta er ansi langt ferli.“