Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja segir það mikið gleðiefni að búið sé að klára viðgerðina á Herjólfi og að hann sé aftur kominn á fullt skrið.
„Skipið bilaði 12. apríl þannig að þetta er búið að vera svolítil þrautaganga en það munar gríðarlega að Herjólfur sé kominn á tvo mótora og geti siglt fulla áætlun.“
Hún segir að viðgerðin hafi tekið of langan tíma og þegar skip bili sé hver dagur of langur.
„Við því var ekkert að gera. Þannig að við erum bara fegin að þessu sé lokið en það þarf auðvitað bara að vera til betra viðbragð ef Herjólfur dettur út.“
Baldur annar ekki flutningum
Breiðafjarðarferjan Baldur kom í stað Herjólfs á meðan hann var í viðgerð og segir Íris það hafa gengið vel en hann geti ekki annað flutningum á fólki, vörum og bílum.
„Það er bara eitthvað sem þarf að takast á við. Svo er hann engan veginn skip sem getur þjónustað okkur ef Herjólfur dettur út þegar það er siglt til Þorlákshafnar. Það er bara hlutur sem þarf að vinna í en þetta eru allavega góðir dagar núna að Herjólfur sé aftur kominn á rétt ról og sé bara kominn í sitt stand,“ segir Íris og þakkar áhöfninni á Baldri fyrir sín störf.
Íris segir íbúa mjög ánægða með að fá Herjólf aftur í sína átta ferða áætlun eins og hann eigi að vera á sumrin og bætir við að hann sé alveg tilbúinn og þurfi ekki fleiri viðgerðir.
„Það er búið að fara í prufusiglingar og hann er byrjaður að sigla. Hann er klár í Þjóðhátíðina.“