„Boeing 757-þotan lauk þjónustu sinni haustið 2025 en núna fær hluti af upprunalega skrokknum nýtt líf í takmörkuðu upplagi, hannað í samstarfi við Icelandair,“ segir í kynningu Aviationtag.
Hekla Aurora var þann 12. október í fyrra kvödd með sérstöku kveðjuflugi frá Reykjavíkurflugvelli. Um 140 flugnördar, þar af um 70 útlendingar, keyptu sér far með þotunni sem yfirflugfreyjan um borð sagði farþegum í hátalakerfi að væri fallegasta flugvél í heimi.
Þotan var rifin á Lleida–Alguaire flugvelli á Spáni en hann er um 150 kílómetra norðvestan Barcelona. Starfsmenn Aviationtag voru þar júlímánuði í sumar að skera búta úr álskrokknum sem enn hélt norðurljósaútlitinu. Úr þeim hafa þeir unnið flugmerkispjöld sem hengja má á töskur eða nota sem lyklakippur.
Flugvélin var upphaflega smíðuð fyrri spænska flugfélagið Iberia og flaug fyrst í apríl 1994. Icelandair eignaðist hana tíu árum síðar, árið 2004. Norðurljósaútlitið fékk hún þó ekki fyrr en árið 2014 en þá var hún endurmáluð hjá fyrirtæki í Norwich á Englandi.
Í lýsingu segir að málararnir hafi unnið út frá ljósmyndum og endurskapað norðurljósin á skrokknum með því að nota flóknar tækni í málningasprautun. Þeir hafi parað vandlega saman flæðandi liti og bætt við íslensku vetrarlandslagi fyrir neðan. Grænir, tyrkisbláir, bláir og djúpir miðnæturtónar hafi blandast saman. Í farþegarýmið hafi verið sett sérsniðið LED-lýsingarkerfi með norðurljósaupplifun.
Hér má sjá frétt frá kveðjufluginu frá Reykjavíkurflugvelli síðastliðið haust: