Frumvarp um stofnun innviðafélags var samþykkt á Alþingi í kvöld með 34 atkvæðum en 22 greiddu ekki atkvæði.
Skiptar skoðanir voru við umræður um afgreiðslu frumvarpsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði það vera enn eina hrákasmíð ríkisstjórnarinnar og væri óklárað. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að hugmyndin um innviðafélag væri góð en útfærslan ekki. Hún sagði að samgönguáætlun væri ófjármögnuð og loforð tengd innviðafélaginu væru ófjármögnuð. Stofnun félagsins breytir að hennar sögn engu um Fljótagöng.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði það frábært að innviðafélagið væri að verða að veruleika. Hann sagði að stjórnvöld ætluðu að sækja fram af miklum metnaði og kvaðst sannfærður um að þau hefðu til þess stuðning þjóðarinnar. „Þetta verður allt þess virði,“ sagði Dagur.
Guðlaugur Þór Þórðarson steig í pontu og lýsti yfir gríðarlegum vonbrigðum með afgreiðslu málsins og vinnubrögð við tilurð þess. Sagði hann enga samstöðu um slík vinnubrögð. „Það er enginn bragur á því að vera að klára mál sem þetta á handahlaupum,“ sagði þingmaðurinn og bætti við að stjórnarliðar væru að redda sér fyrir horn af því þeir væru búnir að missa tök á fjármálum ríkisins.
Þá gerði Miðflokksmaðurinn Þorgrímur Sigmundsson grein fyrir atkvæði sínu og var hlegið dátt í þingsal þegar hann lýsti því hátt og snjallt yfir að hann tæki undir sjónarmið háttvirts þingmanns, Dags B. Eggertssonar. Leiðrétti þingmaðurinn sig og kvaðst hafa átt við Guðlaug Þór Þórðarson.