Landsréttur hefur heimilað kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um réttarkrufningu á líki óþekkts manns. Maðurinn lést í bílsysi í júlí.
Í úrskurðinum segir að tveir hafi verið í bílnum. Bíllinn hafnaði utan vegar og þegar lögregla kom á vettvang voru endurlífgunartilraunir hafnar á farþega bílsins en þær báru ekki árangur.
Ökumaður bílsins var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsi. Í úrskurðinum er hann sagður liggja á gjörgæslu.
Vegabréf tilkynnt sem stolið
Hinn látni er talinn vera erlendur ríkisborgari en ekki reyndist unnt að bera kennsl á hann og fór Lögreglustjórinn á Suðurlandi því fram á réttarkrufningu á „óþekktum manni“, eins og það er orðað í niðurstöðunni.
Héraðsdómur Suðurlands hafnaði upphaflega beiðni lögreglustjórans á Suðurlandi en ákvörðunin var kærð til Landsréttar sem féllst á kröfuna.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafði vegabréf hins látna verið tilkynnt sem stolið en lögregla fékk vegabréfið afhent af þriðja aðila sem sagði það hafa verið í eigu hans. Það eitt þótti ekki fullnægjandi til að bera kennsl á manninn. Í skýrslunni segir að bið eftir því að hægt yrði að bera kennsl á hann með öðrum hætti gæti valdið réttarspjöllum.