Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum verði færð til Umhverfis- og orkustofnunar og horfið verði frá hefðbundinni svæðaskiptingu heilbrigðiseftirlits.
Drög að reglugerðarbreytingu sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafi verið birt í samráðsgátt stjórnvalda en alls sé um að ræða breytingar á fimmtíu og sjö reglugerðum. „Óskað er eftir athugasemdum við reglugerðardrögin í Samráðsgátt eigi síðar en 17. ágúst 2026.“
„Flestar breytingarnar felast í því að verkefni sem áður voru á hendi heilbrigðisnefnda sveitarfélaga færast til Umhverfis- og orkustofnunar, en í einhverjum tilvikum færast verkefni til sveitarfélaga. Jafnframt er orðalag og tilvísanir í reglugerðum uppfært til samræmis við hið nýja fyrirkomulag,“ segir í tilkynningunni.