Þorsteinn Gunnarsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi einn hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir að tveir bílar rákust saman á Reykjanesbrautinni, nánar til tekið við gatnamót suður af Lónakoti.
„Þetta var harður árekstur,“ segir varðstjórinn og tekur fram að tveir hafi verið í öðrum bílnum og einn í hinum.
Annar bíllinn hafi oltið utan vegar og fyrir vikið sé verulegt tjón á honum. Minna tjón sé á hinum.