Haraldur Noregskonungur lagður til hinstu hvílu

Haraldur Noregskonungur lagður til hinstu hvílu

Haraldur Noregskonungur lagður til hinstu hvílu

Á eftir kistu Haraldar Noregskonungs gengu þrír konungar saman og fylgdu kollega sínum. Það eru þeir Karl Gústaf Svíakonungur, Hákon Noregskonungur og Friðrik konungur í Danmörku.

Grétar Þór Sigurðsson, okkar maður í Osló, var í miðborginni í dag þegar Haraldur konungur var jarðsunginn.

Eins og lýst hefur verið hér ríkir þögn og stilling í Osló á útfarardegi Haraldar. Norska ríkisútvarpið segir frá því að mannfjöldinn hafi hins vegar klappað þegar forseti Úkraínu steig út úr dómkirkjunni.

Þegar Haraldur lést gerði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir smá samantekt um konunginn nýja sem sjá má hér að neðan.

Um leið og Haraldur lést varð sonur hans, Hákon, konungur í Noregi. Hann er 53 ára og mikill útivista- og skíðamaður og umhugað um náttúrvernd og mannréttindi.

Hann er giftur Mette Marit sem nú er drottning í Noregi. Hún er ekki af konungakyni og var einstæð móðir þegar samband þeirra Hákonar hófst, eftir tónlistarhátíð í Noregi árið 1999. Hún átt stormasama fortíð að baki, sem olli talsverðu fjaðrafoki þegar sambandið komst í hámæli.

Ekki hefur fjaðrafokið minnkað undanfarin misseri, bæði þegar upp komst um samskipti drottningarinnar við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Þá hefur sonur hennar, Marius, sömuleiðis verið undir kastljósi fjölmiðla eftir að hafa gerst sekur og hlotið dóma fyrir margs konar afbrot, meðal annars kynferðis- og ofbeldisbrot.

Þau Hákon og Mette Marit eiga saman tvö börn Ingiríði Alexöndru ríkisarfa og Sverri Magnús prins, fædd 2004 og 2005.

Hákon valdi sér sömu kjörorð og faðir hans í embætti; Noregi allt.

Markús Þórhallsson tók saman umfjöllun um konunginn nýja.

Kistan flutt á fallbyssuvagni til kastalakirkjunnar í Akerhus. Sá hluti útfararinnar er ekki opinber og þangað mæta færri en voru í dómkirkjunni.

Þangað mæta æðstu embættismenn Noregs, auk norsku konungsfjölskyldunnnar. Þangað koma einnig fulltrúar dönsku og sænsku konungsfjölskyldnanna og forsetar Íslands og Finnlands.

Athöfninni í kirkjunni er að ljúka. Nú verður kista Noregskonungs borin út úr dómkirkjunni. Kista konungs verður flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar í sjónvarpi en við stöndum vaktina áfram hér á vefnum.

Biskupin Olav Fykse Tveit segir að gagnkvæm ást Haraldar á þjóð sinni deyji ekki með honum, heldur lifi áfram í hjörtum Norðmanna.

Þá fer biskupinn með Faðir vorið og svo er komið að moldun.

Norðmenn fjölmenna út á götur höfuðborgarinnar, fylgjast með útsendingunni og syrgja Harald Noregskonung.

Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar las ljóð eftir heilagan Frans frá Assisi. Haraldur var guðfaðir Vikoríu.

Sem fyrr segir sækja íslensku forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason útför Haraldar fyrir hönd Íslands. Saga samskipta Íslands og Noregs er auðvitað löng og Haraldur viðhélt góðu sambandi við íslenska ráðamenn.

Hann heimsótti Ísland sem krónprins 1967 og kom í opinbera heimsókn 1992 í forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur. Haraldur átti stuttan fund með Ólafi Ragnari Grímssyni á leið sinni til Bandaríkjanna 2015.

Hann tók einnig á móti íslenskum ráðamönnum, þar á meðal Guðna Th. Jóhannessyni forseta og Elízu Reid konu hans í opinberri heimsókn 2017. Halla Tómasdóttir hefur tvisvar farið í opinbera heimsókn til Noregs.

Haraldur Noregskonungur kom víða við á langri ævi. Hann stundaði nám við Háskólann í Osló, norska herskólann og Balliol-háskóla í Oxford á Englandi þar sem hann nam sagnfræði, hagfræði og stjórnmálafræði. Hann var mikill íþróttamaður og keppti fyrir Noregs hönd í siglingum á Ólympíuleikunum 1964, 1968 og 1972. Haraldur varð heimsmeistari í siglingum 1987.

Færri komust að en vildu í dómkirkjunni í Osló. En í miðborginni fylgjast margir með útförinni sem er sýnd á nokkrum risaskjám.

Það er ekki bara forsætisráðherra Noregs sem minnist Noregskonungs með hlýju. Þórhallur Guðmundsson hefur búið í Noregi í 50 ár. Hann er að fylgjast með úrförinni og Grétar Þór Sigurðsson ræddi við Þórhall í morgun.

„Við erum búin að bjóða til okkar 5 nágrönnum sem ætlum að horfa á sjónvarpið og fylgjast með, þetta verður stór viðburður og það er gott að geta verið saman með vinum á svona stundu,“ segir Þórhallur og lýsir svo andrúmsloftinu í Noregi undanfarna daga.

„Það hefur verið fullt af hlýju, kærleika, virðingu og fólk talar sérstaklega um þessa sterku þögn sem skapast þegar fólk er að leggja blóm á veggina eða túnin fyrir utan höllina og það skapast alveg ofsalega góð, gott viðmót og ró og þakklæti.“

Hvernig var sambandi þjóðarinnar við Harald háttað?

„Mín upplifun eftir að hafa búið hér í 50 ár er að ég hef sjaldan upplifað Norðmenn jafn samtaka eins og núna, í að sýna kónginum virðingu hlýju og þakklæti fyrir það að hann hefur staðið upp fyrir þau og byggt upp sterka þjóðartilfinningu þar sem allir eru með,“ segir Þórhallur.

Fulltrúar ólíkra trúar- og lífsskoðunarfélaga í Noregi tendra nú kerti í kirkjunni til minningar um Harald Noregskonung.

Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs segir að þakklæti sé sér efst í huga, þakklæti fyrir embættistíð Haraldar Noregskonungs. Hann hafi glaðst með þjóð sinni þegar það átti við með blik í auga, en einnig tekið þátt í sorg þjóðarinnar, til dæmis eftir hryðjuverkin í Útey.

Masud Gharahkhani, forseti norska stórþingsins, minnist nú konungsins. Í kjölfarið talar forsætisráðherra landsins, Jonas Gahr Støre.

Einnar mínútu þögn er nú lokið og athöfnin hefst. Það má fylgjast með henni í spilaranum hér að ofan.

Norska konungshöllin hefur gefið út dagskrána í athöfninni sem fer að hefjast í dómkirkjunni í Osló. Hana er hægt að finna hér og hafa við höndina næsta klukkutímann:
Dagskrá í dómkirkjunni

Hákon og Mette Marit voru gefin saman í dómkirkjunni árið 2001. Kirkjan varð sömleiðis táknmynd samstöðu og vonar í kjölfar hryðjuverkaárásanna í Osló og Útey 2010, segir Anna Lilja Þórisdóttir sem lýsir útsendingunni hér að ofan.

Lögreglan í Osló áætlar að um 53 þúsund manns hafi staðið meðfram Karls Jóhannsgötu á meðan kista Haraldar var borin þar hjá og að um 180 þúsund hafi verið í miðborg Osló.

Boðsgestir eru flestir komnir í dómkirkjuna í Osló þar sem útför Haraldar hefst klukkan 11. Athöfnin hefst á einnar mínútu þögn um landið allt þar sem Norðmenn þagna og minnast konungsins.

Á kortinu má sjá leiðina sem kista Haraldar fer í dag. Fyrst frá konungshöllinni í dómkirkjuna þar sem athöfn hefst innan skamms. Þaðan verður kista konungs flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar.

Marius Borg Høiby, sonur Mette Marit drottningar, gengur ekki með fjölskyldu sinni líkfylgdina. Hann er mættur í dómkirkjuna.

Íslenski fáninn var dreginn í hálfa stöng við sendiráð Íslands í Ósló í morgun.

Þau Hákon og Mette Marit eiga tvö börn saman, Ingiríði Alexöndru, sem varð krónprinsessa við andlát afa síns, og Sverri Magnús. Þau fylgja afa sínum í dag.

Þegar Hákon og Mette Marit kynntust átti hún fyrir soninn Marius Borg Høiby. Hann fær að fylgja Haraldi í dag en gengur ekki með fjölskyldu sinni. Hann afplánar nú fangelsisdóm fyrir nauðgun og önnur ofbeldisbrot.

Nokkuð hefur gustað um norsku konungsfjölskylduna undanfarið sem virðist hafa dregið úr fylgi almennings við konungdæmið á mjög skömmum tíma. Sögulega séð hafa átta af hverjum tíu Norðmönnum stutt það en fylgið féll niður í sextíu af hundraði í könnun Norstat fyrir NRK fyrr á þessu ári.

Haraldur konungur sjálfur fékk hins vegar einkunnina 9,2, Sonja drottning 8,6 og Hákon ríkisarfi 7,9. Hins vegar hlaut Mette Marit eiginkona hans einkunnina 3,7, helmingi lægri en hún fékk áður en ljóstrað var upp um tengsl hennar og fundi með bandaríska kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein.

Sonju drottningu, ekkju Haraldar, er ekið í bíl á eftir kistunni. Árið 1968 gekk Haraldur að eiga jafnöldru sína, Sonju Haraldsen. Ráðahagurinn vakti talsvert uppnám enda Sonja af alþýðuættum. Ólafi konungi, stjórnmálamönnum og mörgum Norðmönnum þótti það hin mesta ósvinna að tilvonandi konungur veldi slíka konu. Þau héldu sambandinu leyndu lengi vel.

Haraldur stóð fast við sinn keip og almenningsálitið snerist fljótt þeim Sonju í vil eftir níu ára bið eftir formlegu hjúskaparleyfi. Konungshjónin hafa verið afskaplega vinsæl og notið mikillar virðingar.

Í bílnum er líka Mette Marit, ný drottning Noregs, eiginkona Hákons. Hún hefur glímt við heilsubrest og undirgekkst lungnaígræðslu fyrir skömmu.

Í líkfylgdinni má sjá mörg kunnugleg andlit. Vilhjálmur krónprins í Bretlandi, Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Alexander Stubb, forseti Finnlands eru meðal þeirra sem ganga svartklædd í kjölfar kistu Haraldar.

Hér má sjá nokkrar myndir frá líkfylgdinni sem lagði af stað klukkan 10.

„Ungir sem aldnir hafa klifrað í trjám og í höggmyndum til að sjá betur yfir fólksfjöldan. Fólk hefur einnig gripið til þess ráðs að nota stiga,“ segir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Fallbyssuskot heyrast undir tónlistinni sem leikin er undir líkfylgdinni.

„Ef hægt er að tala um að kliður hafi verið í fólkinu sem hefur komið sér saman við Karls Jóhanns-götu endilanga þá sló svo sannarlega þögn á hópinn um leið og líkfylgdin hófst,“ lýsir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Veðrið í Osló skartar sínu fegursta þegar þjóðin kveður konungs sinn. Börn Hákons Noregskonungs fylgja afa sínum sömuleiðis.

Drottningunum tveimur, Sonju ekkju Haraldar, og Mette Marit, eiginkonu Hákons, er ekið í bíl eftir kistunni.

Kistan er hjúpuð norska konungsfánanum upplýsir Anna Lilja Þórisdóttir, sem lýsir útförinni í spilaranum hér að ofan.

Eins og sjá má í spilaranum hér að ofan hefst dagskráin á réttum tíma. Á slaginu klukkan 10 var gengið af stað með kistu konungs á vagni. Hákon Noregskonungur er meðal þeirra sem gengur með kistu föður síns.

Eitt af síðustu embættisverkum Haraldar var einmitt í dómkirkjunni þar sem útför hans fer senn fram. Þar tók hann þátt í minningarathöfn um þau sem létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og Útey fyrir 15 árum. Minningarathöfnin var 22.júlí síðastliðinn.

Senn líður að því að Haraldur yfirgefi norsku konungshöllina í síðasta sinn. Kista hans hefur staðið þar frá 1.september. Líkfylgdin verður eftir Karls Jóhannsgötu og er um 1,2 kílómetra löng.

Við sýnum beint frá útför Haraldar Noregskonungs í sjónvarpi frá klukkan 9.50. Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður er tilbúin að lýsa því sem fyrir augu ber. Anna Lilja þekkir vel til sögu kóngafólks um alla Evrópu svo lýsingin verður í öruggum höndum.

Bæði er hægt að horfa á útsendinguna í sjónvarpi og í spilaranum hér að ofan.

En það eru ekki allir svartklæddir í tilefni dagsins. Gefum Grétari Þór orðið:

Norski þjóðbúningurinn sker sig úr annars dökk-eða svartklæddu mannhafinu við Karls Jóhanns-götu.

Ellen Margrethe Ulving er ein þeirra sem klæddi sig upp við þetta tilefni. Hún segir norska búninginn, eða bunad, viðeigandi við öll formleg tilefni þar á meðal jarðarfarir. „Ekki gat ég mætt í gallabuxum,“ segir hún, spurð að því hvers vegna hún valdi þjóðbúninginn í dag.

En það eru ekki bara þjóðhöfðingjar sem mæta til leiks í dag. Á gestalistanum er einnig að finna nafn Marthe Kristine Paulsen, 36 ára konu frá Kviteseid. Hún var 13 ára þegar hún hitti Harald Noregskonung í fyrsta og eina skiptið. Þá hafði hún, ásamt öðrum börnum, tjáð sig um ofbeldi sem þau höfðu orðið fyrir á heimilum sínum. Haraldur bauð börnunum í heimsókn í höllina og fékk að heyra sögu Paulsen. Í kjölfarið sagði hann að ofbeldið væri ekki henni að kenna, orð sem Paulsen sagði hafa bjargað sér.

Hún sendi samúðarkveðju við andlát Haraldar og þakkaði honum fyrir þessu hughreystandi orð. Henni þótti leitt að hafa aldrei getað þakkað honum í eigin persónu, en sagðist í viðtali við NRK, norska ríkissjónvarpið, að hún hefði bæði verið hissa og glöð þegar hún fékk boðskort í útförina.

Hér má lesa umfjöllun NRK um málið.

Prúðbúnir þjóðarleiðtogar eru mættir til Osló til að fylgja Haraldi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Og hvað vitum við þá um hverjir mæta og hverjir ekki?

Á sunnudag boðað Margrét Danadrottning forföll af heilsufarsástæðum en Friðrik Danakonungur og Mary drottning mæta.

Sænska konungsfjölskyldan mætir öll og spænsku konungshjónin sömuleiðis. Hollensku og belgísku konungshjónin mæta sömuleiðis.

Vilhjálmur krónpris í Bretlandi mætir og Anna systir Karls konungs sömuleiðis. Hefðin býður að konungur eða drottning í Bretlandi mæti jafnan ekki á viðburði sem þessa en sendi sína næstráðendur í sinn stað.

Þannig mætti Karl, þá krónprins, til útfarar Ólafs Noregskonungs, í stað móður sinnar.

Það er í nógu að snúast hjá ráðamönnum heims. Donald Trump mætir til að mynda ekki. Landsfundur Repúblikanaflokksins verður haldinn í Texas í vikunni og Trump tekur henn fram yfir að þessu sinni.

Þegar Ólafur Noregskonungur var borinn til grafar 1991 mætti Dan Quayle, varaforseti George H.W. Bush, fyrir hönd bandarískra stjórnvalda.

Forseti Finnlands, Alexander Stubb, hefur boðað komu sína og sem og forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier.

Sætafjöldi er takmarkaður og um tíma leit ekki út fyrir að allir þingmenn á norska þinginu fengju boð. Það fengu þeir þó á endanum. Fyrrum forsætsráðherrum er einnig boðið, þeirra á meðal Gro Harlem Brundtland og Ernu Solberg.

Mikil öryggisgæsla verður í höfuðborginni Osló. Þúsundir lögreglu- og hermanna, norskra, danskra og sænskra, verða til að gæta öryggis enda búist við að tugþúsundir safnist saman í miðborginni.

Yfirvöld í Noregi ákváðu í öryggisskyni að birta ekki lista yfir þá þjóðarleiðtoga sem sækja útförina en öllum löndum sem eiga sendifulltrúa í Noregi er boðið að senda gest til athafnarinnar og að það sé hverju þeirra í sjálfvald sett að upplýsa hvaða ráðamenn verði viðstaddir.

NRK tók saman frétt um hverjir mæta.

Danska ríkisútvarpið greinir frá því að fjölmargir Norðmenn hafi tekið sér frí frá skóla og vinnu í dag til að fylgjast með útför Haraldar.

Grétar Þór segir meirihluta viðstaddra á götum úti klæðast svörtu í tilefni dagsins.

„ Þrátt fyrir mikinn mannfjölda er þó eitt sérkenni á andrúmsloftinu í miðborginni og það er þögnin,“ segir Grétar Þór Sigurðsson, fréttamaður, sem er í miðborg Osló. Hér má sjá nokkrar myndir frá morgninum.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, verða við útför Haraldar Noregskonungs. Halla segir Harald fimmta Noregskonung hafa verið góðan þjóðhöfðingja sem Norðmönnum þótti afar vænt um. Í viðtali við fréttastofu daginn sem Haraldur lést, 28.ágúst, sagði Halla meðal annars:

„Það er alveg ljóst að norska þjóðin er í sorg í dag og við finnum til með frændum okkar Norðmönnum á svona degi. Þarna er fallinn frá afskaplega góður þjóðhöfðingi sem þjóðinni þótti vænt um. Ég skynjaði líka að okkur utan landamæranna þótti sérstaklega vænt um hann og sannarlega á það við um mig. Þetta var einstaklega vitur, hlýr maður með góða kímnigáfu sem sinnti þjóð sinni vel og var elskaður af henni,“ segir Halla í viðtali við fréttastofu.

Komið hafi á óvart hve stutt var í kímnigáfuna hjá Haraldi.

„Það var svo fallegt í hans fari. Við vorum að ræða flókin mál, flókna stöðu í heiminum, áskoranir, en einhvern veginn var stutt í brosið og hláturinn og mennskuna og ég fann það svo hvað hans einlæga ást á sinni þjóð var honum alltaf efst í huga. Ég fann líka fyrir þessari ást í garð Íslendinga.“

„ Fólk er tekið að streyma í miðborgina og nú þegar eru þúsundir við Karls Jóhanns-götu. Kistu konungs verður ekið sem leið liggur um götuna á eftir, frá konunglegu kapellunni í konungshöllinni yfir í dómkirkju Óslóar,“ segir Grétar Þór Sigurðsson í Osló.

Fréttamaður okkar, Grétar Þór Sigurðsson, er búsettur í Osló. Eins og flestir íbúar borgarinnar finnur hann fyrir viðbúnaðinum í borginni. Gefum Grétari orðið:
„ Öryggisgæsla er eins og gefur að skilja mikil í miðborg Óslóar. Stór hluti hennar er lokaður fyrir bílaumferð. Lögregla hefur sett upp nokkur hlið inn í miðborgina þar sem leitað er í töskum gangandi vegfaranda en þúsundir lögreglumanna standa vaktina í dag.“

Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman sjónvarpsfrétt með svipmyndum frá ævi Haraldar þegar hann lést 28.ágúst. Fréttina má sjá hér að ofan.

Haraldur varð konungur í Noregi 1991 þegar faðir hans, Ólafur V, lést. Hann var því konungur í rúm 35 ár og fylgdi þjóð sinni gegnum þykkt og þunnt.

Haraldur fæddist 21. febrúar 1937. Hann var fyrsti ríkisarfinn sem fæddist í Noregi í um það bil 600 ár, á Skaugum í Asker. Móðir Haraldar, Märtha krónprinsessa, flúði með hann og systur hans til Svíþjóðar og loks til Bandaríkjanna þegar Þjóðverjar réðust inn í Noreg.

Faðir Haraldar og Hákon VII., afi hans, bjuggu í Lundúnum þar til heimsstyrjöldinni lauk. Fjölskyldan sneri aftur til Noregs í júní 1945, við mikinn fögnuð landsmanna. Við andlát Hákons VII. varð Haraldur ríkisarfi þegar Ólafur tók við krúnunni.

Haraldur þótti alúðlegur og hlýr konungur ef marka má fréttir af honum, með ríka kímnigáfu og framsækinn meðal annars á sviði mannréttindamála. Hann vakti heimsathygli með ræðu sem hann hélt fyrir tíu árum þar sem hann talaði hástöfum meðal annars fyrir réttindum hinsegin fólks og innflytjenda.

Hann er sagður hafa litið á það sem sitt hlutverk að hughreysta þjóðina þegar á móti blés, ekki síst eftir hryðjuverkin í Osló og Útey 2011. Haraldur heimsótti allar byggðir Noregs í valdatíð sinni og fór í fjölda heimsókna erlendis.

Markús Þórhallsson skrifaði um æviágrip Haraldar þegar hann féll frá. Það má lesa hér að neðan.

1900 hermenn gengu fylktu liði eftir Karl Jóhannsgötu í Osló í morgun að viðstöddu fjölmenni sem fylgdist með á götum úti. Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá brot frá morgninum.

Formleg dagskrá er þegar hafin. Þúsundir hermanna ganga fylktu liði eftir götum Osló. Hér eru svo helstu tímasetningar:

Kl. 10 - Kista Haraldar verður flutt frá konungshöllinni og yfir í dómkirkjuna í Osló. Gestir koma sér fyrir í dómkirkjunni.

Kl. 10.42 - Kistan verður borin inn í dómkirkjuna.

Kl. 11.00 - Athöfnin hefst með einnar mínútu þögn um landið allt.

Kl. 12.00 - Athöfninni í dómkirkjunni lýkur. Kista konungs verður flutt yfir í Akerhus kastalakirkjuna þar sem hann verður lagður til hinstu hvílu. Í kirkjunni er grafhýsi þar sem foreldrar Haraldar og amma hans og afi hvíla. Þar kemur Haraldur sömuleiðis til með að hvíla. Ekki verður sýnt frá þessum hluta athafnarinnar.

Kl. 13.20 - Fánar dregnir að húni sem marka endalok útfararinnar.

Kl. 13.25 - Konungsfjölskyldan yfirgefur Akerhus kastalakirkjuna.

Kl. 13.35 - Konungsfjölskyldan mæti í konungshöllina.

Kl. 14.45 - Konungsfjölskyldan veifar til mannfjöldans af svölum konungshallarinnar.

Í spilaranum hér að ofan má fylgjast með útsendingu NRK, norska ríkissjónvarpsins, í allan dag. Við hefjum svo útsendingu í sjónvarpi sömuleiðis kl. 9.50 og fram yfir hádegið. Anna Lilja Þórisdóttir lýsir herlegheitunum.

Haraldur Noregskonungur verður lagður til hinstu hvílu í Osló í dag. Mikll viðbúnaður er í höfuðborg Noregs. Ég heiti Birta Björnsdóttir og ætla að lýsa hér því sem fyrir augu ber í Noregi í dag. Fjöldi fyrirmenna er væntanlegur í útförina og Norðmönnum þótti vænt um konunginn sinn.

#haraldur #hinstu #lagður #noregskonungur #til


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-09-09-haraldur-noregskonungur-lagdur-til-hinstu-hvilu-486490

📰 Aðrar fréttir

Gusumeistarinn á Ægisíðu í stríði við heilbrigðiseftirlitið
📅 09.09.2026 👁️ 0
Gusumeistarinn á Ægisíðu í stríði við heilbrigðiseftirlitið
Fyrirtæki sem annast rekstur gufubaðs í litlum skúr á Ægisíðu, í vesturbæ Reykjavíkur, sem áður var notaður vegna grásleppuveiða hefur kært ákvörðun H...
Fangi kvartaði eftir að Reykjavíkurborg sagðist ætla að vísa honum á dyr
📅 09.09.2026 👁️ 0
Fangi kvartaði eftir að Reykjavíkurborg sagðist ætla að vísa honum á dyr
Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á kvörtun fanga sem fékk þær upplýsingar frá Reykjavíkurborg að leigusamningi fangans vegna félagslegs ...
Tímabundin lausn í sjónmáli – hundruð barna enn á biðlista
📅 09.09.2026 👁️ 0
Tímabundin lausn í sjónmáli – hundruð barna enn á biðlista
Bið eftir þjónustu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar lengist eftir að loka þurfti húsnæðinu við Dalshraun í Hafnarfirði vegna myglu. Leitað er að tímabu...
Þúsundir kalla eftir af­sögn Þor­gerðar: „Vand­ræða­leg til­raun“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Þúsundir kalla eftir af­sögn Þor­gerðar: „Vand­ræða­leg til­raun“ - Vísir
Alls höfðu 6.867 manns skrifað undir áskorunina á Ísland.is þegar fréttin var unnin rétt fyrir klukkan hálf eitt í dag. Ábyrgðarmaður söfnunarinnar er...
UK flight chaos continues affecting Canary Islands passengers
📅 09.09.2026 👁️ 1
UK flight chaos continues affecting Canary Islands passengers
Flights across the UK have resumed today, Wednesday, following the major technical failure that brought severe disruption to British airports on Tuesd...
Actor Noel Clarke charged with sexual offences
📅 09.09.2026 👁️ 1
Actor Noel Clarke charged with sexual offences
He has been charged with sexual offences including sexual assault, voyeurism and exposure.
Trump-kortið og tvöföld girðing nýrrar ESB-atlögu
📅 09.09.2026 👁️ 0
Trump-kortið og tvöföld girðing nýrrar ESB-atlögu
Trump-kortið og tvöföld girðing nýrrar ESB-atlögu Fréttin9. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Commen...
Volkswagen-bílaverksmiðju breytt í ísraelska vopnaframleiðslu
📅 09.09.2026 👁️ 0
Volkswagen-bílaverksmiðju breytt í ísraelska vopnaframleiðslu
Volkswagen-bílaverksmiðju breytt í ísraelska vopnaframleiðslu Fréttin9. september 2026ErlentLeave a Comment Þýski bílarisinn Volkswagen hefur samþykkt...
Ísraelska blaðið Haaretz segir að Netanyahu hafi verið varaður við árás Hamas þann 7. október nokkrum dögum áður
📅 09.09.2026 👁️ 0
Ísraelska blaðið Haaretz segir að Netanyahu hafi verið varaður við árás Hamas þann 7. október nokkrum dögum áður
Ísraelska blaðið Haaretz segir að Netanyahu hafi verið varaður við árás Hamas þann 7. október nokkrum dögum áður Fréttin9. september 2026ErlentLeave a...
Fjöldi mennta­skóla­nema sá mynd­skeið af á­rásinni - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Fjöldi mennta­skóla­nema sá mynd­skeið af á­rásinni - Vísir
Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur þeim Kareem Abufarhah, Qossay Alsadi og Mohamed Ahmed hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og heldur áfra...
Channel 4 to cut 340 jobs by the end of the year in major shake-up
📅 09.09.2026 👁️ 0
Channel 4 to cut 340 jobs by the end of the year in major shake-up
It comes after the network conducted a review amid a "rapidly changing media landscape".
Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 0
Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni - Vísir
„Lakið gleymist oft í umræðunni en við liggjum á því alla nóttina. Efnið og áferðin skipta því miklu máli. Sama gildir um rúmfötin, sængina og koddann...
Undirskriftalista Sigfúsar illa tekið: „Algjörlega út úr korti“
📅 09.09.2026 👁️ 0
Undirskriftalista Sigfúsar illa tekið: „Algjörlega út úr korti“
Ef það verður krafa að stjórnmálamenn segi af sér ef þeir fá ekki sínu fram í þjóðaratkvæðagreiðslu þá mun það senda þau skilaboð inn í framtíðina að ...
Yfirgefur gervigreindarfyrirtæki: „Þeir eru að leika sér með líf okkar“
📅 09.09.2026 👁️ 0
Yfirgefur gervigreindarfyrirtæki: „Þeir eru að leika sér með líf okkar“
Yfirgefur gervigreindarfyrirtæki: „Þeir eru að leika sér með líf okkar“ Gervi­greind­ar­sér­fræð­ing­ur sem hef­ur unn­ið að þró­un gervi­greind­ar sn...
Hiker dies after suffering cardiac arrest in Lanzarote
📅 09.09.2026 👁️ 1
Hiker dies after suffering cardiac arrest in Lanzarote
A woman aged around 60 has died after suffering a cardiac arrest while hiking near Femés in southern Lanzarote.Emergency services were called to a tra...
60-year-old hiker dies after helicopter rescue in Lanzarote
📅 09.09.2026 👁️ 0
60-year-old hiker dies after helicopter rescue in Lanzarote
A 60-year-old woman died after suffering a medical emergency while walking on a hiking trail in the municipality of Yaiza, Lanzarote, despite efforts ...
Miliband rejects chief rabbi's claim British Jews in greater danger after sanctions move
📅 09.09.2026 👁️ 0
Miliband rejects chief rabbi's claim British Jews in greater danger after sanctions move
The foreign secretary disagrees with the UK's chief rabbi who warns sanctions on Israeli settlements could put British Jews at greater risk.
Vaxandi gyðingaandúð í Evrópu
📅 09.09.2026 👁️ 1
Vaxandi gyðingaandúð í Evrópu
Vaxandi gyðingaandúð í Evrópu Fréttin9. september 2026Aðsend grein, Erlent, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Gyðingaandú...
Aðalmeðferð seinkaði því vitnið fann ekki héraðsdóm
📅 09.09.2026 👁️ 0
Aðalmeðferð seinkaði því vitnið fann ekki héraðsdóm
Annar dagur aðalmeðferðar í Höfðatorgsmálinu, þar sem þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg í mars, hófst ...
Leik­skóla­kennarar slegnir yfir um­mælum Ingu - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Leik­skóla­kennarar slegnir yfir um­mælum Ingu - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Bandaríkjamenn hafa bannað innflutning á fjölda kanadískra vara, til að mynda á áfen...
1991 var eitt stærsta ár tón­listar­sögunnar - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
1991 var eitt stærsta ár tón­listar­sögunnar - Vísir
„Fyrir mína kynslóð er 1991 eitt stærsta ár tónlistarsögunnar. Þetta er mótunarárið, alveg sama hvað fólk þykist vera töff, þú hlustar á það sem þú hl...
Fara­ge kemur frönskum skoðana­bróður í klandur - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 0
Fara­ge kemur frönskum skoðana­bróður í klandur - Vísir
Farage og Bardella héltu á risavöxnu plaggi með undirskrift byggja á landsþingi Umbótaflokksins í Birmingham í síðustu viku. Samkomulag þeirra gerir r...
Nornir komu saman á miðils­fundi - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Nornir komu saman á miðils­fundi - Vísir
Gestalistinn var stjörnum prýddur og þar voru meðal annars Manúela Ósk framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland, Brynja Dan eigandi Extraloppunnar, Birgitta Líf...
Germany's Merz attacks AfD in parliament after far-right election win
📅 09.09.2026 👁️ 1
Germany's Merz attacks AfD in parliament after far-right election win
Germany's chancellor clashes with AfD leader Alice Weidel, saying her migration policy amounts to "ethnic cleansing" for skilled workers.
Íslendingar í vanda á Spáni út af gjaldþroti leigufélags: „Ég á ekki orð til að lýsa tilfinningum mínum“
📅 09.09.2026 👁️ 0
Íslendingar í vanda á Spáni út af gjaldþroti leigufélags: „Ég á ekki orð til að lýsa tilfinningum mínum“
Tíu Íslendingar eru í erfiðleikum á Alicante á Spáni eftir að hafa leigt húsnæði af leigufélagi sem er í eigu íslensks fyrirtækis sem komið er í greið...
Police say Nottingham attacks were 'not preventable', public inquiry hears
📅 09.09.2026 👁️ 1
Police say Nottingham attacks were 'not preventable', public inquiry hears
Police say any mistakes were not missed opportunities to prevent the 2023 Nottingham attacks.
Bondleikari tjáir sig um orðróminn um næsta Bond
📅 09.09.2026 👁️ 0
Bondleikari tjáir sig um orðróminn um næsta Bond
Eftir að leikarinn Gary Oldman hélt því fram að ráðningarferli fyrir James Bond væri lokið, hefur einn leikari úr fyrri myndum stigið fram til að deil...
Giuliani segir að Mamdani ætti ekki að mæta í minningarathöfnina 11. september vegna þess að hann er múslimi
📅 09.09.2026 👁️ 0
Giuliani segir að Mamdani ætti ekki að mæta í minningarathöfnina 11. september vegna þess að hann er múslimi
Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, vill ekki sjá Zohran Mamdani, núverandi borgarstjóra á minningarathöfninni um hryðjuverkin 11. septe...
Átti óheillavænlegt sam­tal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 0
Átti óheillavænlegt sam­tal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ - Vísir
Sextánda sería raunveruleikaþáttanna The Real Housewives of New York var frumsýnd á þriðjudaginn og í fyrsta þættinum heimsækir Martha Stewart förðuna...
Petrol prices rise by 5p over a week as Iran war sends oil higher
📅 09.09.2026 👁️ 0
Petrol prices rise by 5p over a week as Iran war sends oil higher
A litre of unleaded now costs 167.17p which is the biggest weekly increase since April, data shows.
Tveggja ára og talar betri ís­lensku en flest - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 0
Tveggja ára og talar betri ís­lensku en flest - Vísir
Á bak við afmælisbarnið stendur máltæknifyrirtækið Miðeind, en Málstaður sameinar ýmis verkfæri fyrir íslensku á einum stað. Auk þessara 40 þúsund not...
Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla
📅 09.09.2026 👁️ 1
Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla
Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla Bílaumboðið Hekla Mynd: Hekla Húsnæðis- og mannvirkjastofnun barst tilkynning frá Heklu um innköllun á Skoda ...
„Sleggja beint í höfuðið á al­menningi og fyrir­tækjum“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 0
„Sleggja beint í höfuðið á al­menningi og fyrir­tækjum“ - Vísir
„Eins og margir hér vita er enn þá í gangi þríhliða samtal á milli ríkisins, SA og ASÍ, þar er ýmislegt verið að ræða. Meðal annars gjöld sem er verið...
Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér
📅 09.09.2026 👁️ 1
Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér
Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér Troða akvegi og vörulosun upp við svefnherbergisglugga: Mynd: Facebook/Árni Íbúar í Árskógum og við Álfabakka l...
Google fjárfestir fyrir milljarða í Finnlandi
📅 09.09.2026 👁️ 2
Google fjárfestir fyrir milljarða í Finnlandi
Google tæknifyrirtækið ætlar að fjárfesta fyrir meira en þrettán milljarða evra (hátt í tvö þúsund milljarða króna) í Finnlandi á næstu tveimur árum.F...
Breytingar á innan­lands­flugi vegna bilunar - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 2
Breytingar á innan­lands­flugi vegna bilunar - Vísir
Til að lágmarka áhrif kemur fram í tilkynningu að félagið hafi bætt við fimmtán aukaferðum til Akureyrar og Egilsstaða frá og með morgundeginum, fimmt...
Vonsvikinn og óttasleginn Jón Gnarr: „Ég er ráðvilltur og á í raun erfitt með að finna orð til að lýsa líðan minni“
📅 09.09.2026 👁️ 2
Vonsvikinn og óttasleginn Jón Gnarr: „Ég er ráðvilltur og á í raun erfitt með að finna orð til að lýsa líðan minni“
Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, er einn þeirra sem tjáir sig um kortið sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, birti á samfélagsmiðli sínum á mánuda...
Trump lætur 9/11 snúast um sig
📅 09.09.2026 👁️ 1
Trump lætur 9/11 snúast um sig
Trump lætur 9/11 snúast um sig Í Hvíta hús­inu var við­bragðs­að­ila sem lét­ust í hryðju­verka­árás­um á Banda­rík­in ár­ið 2001 minnst. Don­ald Trum...
Sinkhole appears outside Malibu home thought to belong to Nicolas Cage
📅 09.09.2026 👁️ 0
Sinkhole appears outside Malibu home thought to belong to Nicolas Cage
The driveway of the beach-front house collapsed on Tuesday morning, according to local authorities.
Hægriöfgamenn geta notfært sér gjána á milli raunveruleika og upplifunar
📅 09.09.2026 👁️ 2
Hægriöfgamenn geta notfært sér gjána á milli raunveruleika og upplifunar
Kosningaúrslitin í Saxlandi-Anhalt, þar sem hægriöfgaflokkurinn Alternative für Deutschland, fékk langmest fylgi allra flokka, varpa ljósi á fyrirbæri...
Emotional moment as Alan Carr honoured at National Television Awards
📅 09.09.2026 👁️ 0
Emotional moment as Alan Carr honoured at National Television Awards
The comedian received the Special Recognition prize at Tuesday night's awards.
Þessi 13 tala í kvöld
📅 09.09.2026 👁️ 2
Þessi 13 tala í kvöld
Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra fara fram á Alþingi í kvöld.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra gerir grein fyrir helstu stefnumálum ríkisst...
Þorgerður Katrín sagði ESB að viðræður hefjist ekki á ný
📅 09.09.2026 👁️ 1
Þorgerður Katrín sagði ESB að viðræður hefjist ekki á ný
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sendi Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, í gær bréf þar sem hún tilkynnti að Ísland ætli ekki ...
Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi
📅 09.09.2026 👁️ 0
Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi
Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi Stekkjarhóll Glæsilegt 270 fermetra einbýlishús með útsýni yfir Meðalfellsvatn og Hva...
Lang­flestir upp­lifðu sólmyrkvann - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 2
Lang­flestir upp­lifðu sólmyrkvann - Vísir
Almyrkvi varð á sólu yfir vestanverðu landinu 12. ágúst. Umtalsverður deildarmyrkvi sást annars staðar á landinu. Marktækur munur var á því hversu mar...
Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“
📅 09.09.2026 👁️ 2
Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“
Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“ Skóg­rækt­ar- og ferða­þjón­ustu­bónd­inn og kenn­ar­inn, Jó­hanna Hall­dóra Sig­urð­ar­dótt...
Andrea leitaði til dómstóls götunnar – „Hvor er fávitinn, ég eða hann?“
📅 09.09.2026 👁️ 3
Andrea leitaði til dómstóls götunnar – „Hvor er fávitinn, ég eða hann?“
Það er ekki alltaf augljóst hvar akgreinin heldur áfram í miðri beygju á stórum gatnamótum, fjölmiðlakonan Andrea Sigurðardóttir fékk heldur betur að ...
Antropic researcher believes more than 10% chance AI 'could kill all humans'
📅 09.09.2026 👁️ 2
Antropic researcher believes more than 10% chance AI 'could kill all humans'
It is the latest in a series of increasing warnings about the safety threat posed by artificial intelligence.
Anthropic researcher believes more than 10% chance AI 'could kill all humans'
📅 09.09.2026 👁️ 0
Anthropic researcher believes more than 10% chance AI 'could kill all humans'
It is the latest in a series of increasing warnings about the safety threat posed by artificial intelligence.
Fagnar áformum ráðherra á leigumarkaði
📅 09.09.2026 👁️ 3
Fagnar áformum ráðherra á leigumarkaði
Formaður Leigjendasamtakanna fagnar fyrirhuguðu frumvarpi um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð.Nái frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra fram ...