Haraldur Noregskonungur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Ósló í dag.
Fulltrúar konungsfjölskyldna Evrópu eru mættir til Noregs til að kveðja Harald, þeirra á meðal Vilhjálmur Bretaprins, konungsfjölskyldur af Norðurlöndum og spænsku konungshjónin. Þangað eru líka komnir ráðamenn víða að, svo sem forsetar Finnlands, Þýskalands og Úkraínu og forsætisráðherrar Frakklands og Taílands.
Athöfnin hefst á hádegi, klukkan tíu að íslenskum tíma, þegar haldið verður með kistu Haraldar frá konungshöllinni. Hún verður flutt á fallbyssuvagni í gegnum borgina að dómkirkjunni. Fjöldi fólks gengur á eftir kistunni, þar á meðal Hákon konungur, annað konungborið fólk og þjóðhöfðingjar og fulltrúar erlendra ríkja.
Sonja drottning, ekkja Haraldar, og Mette-Marit drottning, sem hefur glímt við mikil veikindi, fylgja á eftir í bíl.
Öryggisgæsla er ein sú mesta í sögu Noregs. Um 3.000 lögreglumenn verða á vakt meðan á athöfninni stendur og 3.500 hermenn standa vörð.
Haraldur verður lagður til kistu í steinkistu.
Fánar við opinberar byggingar hafa verið í hálfa stöng frá andláti konungs. Þegar útförinni lýkur verða þeir hífðir í fulla hæð og kirkjuklukkum hringt í klukkustund. Það er hylling nýs konungs.
Bein útsending verður á RÚV frá útförinni og hefst hún klukkan 9:50. Einnig verður fréttavakt á rúv.is.