Hryðjuverkasamtökin Hamas eru grunuð um að hafa byggt upp umfangsmikið aðgerða- og vopnanet í Evrópu sem átti að geta gert árásir á gyðinga, Ísraela og vestræn skotmörk. Vopn voru flutt milli landa, falin í leynilegum geymslum og nokkrir hinna grunuðu eru sagðir hafa hlotið þjálfun í sprengjugerð.
Þetta kemur fram í umfangsmikilli rannsókn svissneska dagblaðsins Neue Zürcher Zeitung, NZZ, sem hefur rakið þræði málsins frá Grikklandi og Kýpur til Þýskalands, Danmerkur, Austurríkis, Bretlands, Póllands og Búlgaríu.
Hluti upplýsinganna hefur þegar verið staðfestur í tilkynningum þýskra og austurrískra yfirvalda, en önnur atriði byggja á gögnum og heimildarmönnum NZZ innan rannsóknarinnar.
Grunaður um að undirbúa árás á skemmtiferðaskip
Nýjasti angi málsins kom upp þegar grísk sérsveit handtók 37 ára mann af palestínskum uppruna á Krít í júní. Maðurinn, sem sumir grískir fjölmiðlar hafa nefnt Motasem og sagt vera með egypskt ríkisfang, starfaði sem rafvirki á hóteli í ferðamannabænum Agios Nikolaos.
Við leit á heimilum hans á Krít og í Aþenu fundu rannsakendur meðal annars tölvur, síma, gagnageymslur, nákvæmnisvog, rannsóknarbúnað og ýmis kemísk efni. Hann er einnig sagður hafa pantað fleiri efni sem yfirvöld töldu að mætti nota við framleiðslu sprengju.
Handtakan var hluti af rannsókn sem hófst eftir handtökur Palestínumanna á Kýpur. Grísk yfirvöld telja manninn hafa verið í sambandi við þá og að hópurinn hafi undirbúið árás á ísraelskt skotmark einhvers staðar í Evrópu.
Ísraelskt skemmtiferðaskip sem kemur reglulega til hafna í Grikklandi er talið hafa verið eitt mögulegra skotmarka. Yfirvöld hafa þó tekið fram að áætlunin hafi enn verið á undirbúningsstigi og að hópurinn hafi ekki verið búinn að afla alls þess búnaðar sem þurfti til árásarinnar.
Samkvæmt NZZ ferðuðust maðurinn og annar grunaður liðsmaður árið 2025 um Sviss, Katar og Indónesíu á leið til Malasíu. Rannsakendur telja að þeir hafi þar fengið þjálfun í að búa til sprengjur úr efnum sem hægt er að kaupa á almennum markaði.
Árás sögð hafa verið fyrirhuguð 7. október
NZZ segir að þýskir rannsakendur hafi fundið upptöku þar sem ábyrgð á fyrirhugaðri árás var lýst yfir fyrir fram. Það gæti bent til þess að undirbúningurinn hafi verið kominn lengra en áður hafði verið talið.
Samkvæmt rannsókn blaðsins hafði hópurinn jafnframt horft til 7. október 2025 sem mögulegs árásardags. Þá voru liðin tvö ár frá árás Hamas á Ísrael 7. október 2023.
Engin slík árás var gerð þann dag og ekki hefur verið greint opinberlega frá því hvaða einstaka skotmark átti að verða fyrir valinu. Upplýsingarnar um dagsetninguna hafa heldur ekki komið fram í opinberum tilkynningum saksóknara heldur byggja á rannsókn NZZ.
Vopn flutt milli Danmerkur, Berlínar og Vínar
Rannsóknin tengir málið við hóp sem þýskir saksóknarar segja hafa útvegað Hamas skotvopn og skotfæri til fyrirhugaðra árása á gyðinga og ísraelskar stofnanir.
Þrír menn voru handteknir í Berlín 1. október 2025 þegar lögregla stöðvaði afhendingu vopna. Þar fundust meðal annars sjálfvirkur AK-47-riffill, nokkrar skammbyssur og hundruð skotfæra. Þýskir saksóknarar segja mennina hafa verið erlenda aðgerðarmenn Hamas og að vopnin hafi átt að nota við banvænar árásir.
Rannsóknin leiddi síðan til fleiri handtaka. Maður að nafni Borhan El-K. var handtekinn í nóvember eftir að hafa komið til Þýskalands frá Tékklandi. Hann er sakaður um að hafa útvegað sjálfvirkan riffil, átta Glock-skammbyssur og meira en 600 skot árið 2025. Annar maður er grunaður um að hafa flutt vopnin áfram til Berlínar.
Breskur ríkisborgari var einnig handtekinn í London að beiðni Þjóðverja. Hann er grunaður um að hafa sótt fimm skammbyssur í Berlín og flutt þær til Vínar.
Austurríska leyni- og öryggisþjónustan fann síðar ferðatösku með fimm skammbyssum og tíu skotgeymum í leigðri geymslu í Vín. Austurrísk yfirvöld tengdu vopnin formlega við erlenda aðgerðastarfsemi Hamas og sögðu þau hafa verið geymd fyrir mögulegar hryðjuverkaárásir á gyðinga eða ísraelsk skotmörk í Evrópu.
NZZ telur að netið hafi alls flutt að minnsta kosti 13 skammbyssur, AK-47-riffil og meira en 900 skot milli Norðurlanda, Þýskalands og Austurríkis. Þessar heildartölur hafa ekki allar verið birtar saman í opinberum tilkynningum, en einstakar vopnasendingar og fundir hafa verið staðfestir af yfirvöldum.
Níu handtökuskipanir frá október
Samkvæmt NZZ hafa þýskir alríkissaksóknarar frá október 2025 látið handtaka eða gefið út handtökuskipanir á hendur níu mönnum í tengslum við rannsóknina.
Handtökurnar hafa meðal annars farið fram í Berlín, London, Vín, við Kaupmannahöfn, á Brandenburg-flugvelli og á Larnaca-flugvelli á Kýpur.
Í mars var maður fæddur í Líbanon handtekinn við komu sína til Larnaca. Hann er grunaður um að hafa komið 300 skotum í hendur milliliða sem áttu að flytja þau áfram fyrir meintar árásir Hamas á gyðinga eða ísraelsk skotmörk. Í maí var danskur ríkisborgari síðan handtekinn nærri Kaupmannahöfn, sakaður um að hafa afhent fimm skammbyssur og skotfæri sem enduðu í Vín.
Vopnageymslur frá árinu 2019
Þetta er ekki fyrsta rannsóknin sem bendir til þess að Hamas hafi komið upp vopnageymslum í Evrópu.
Í desember 2023 voru fjórir menn handteknir í Þýskalandi og Hollandi. Saksóknarar sögðu þá hafa leitað að eldri vopnageymslum og komið upp nýjum geymslum fyrir Hamas í Búlgaríu og Danmörku. Einnig var reynt að finna hentugan felustað í Póllandi.
Í mars á þessu ári voru mennirnir fjórir dæmdir í fjögurra til sex ára fangelsi í Berlín. Dómstóllinn taldi sannað að þeir hefðu tekið þátt í að byggja upp vopnabúr til undirbúnings árásum á gyðinga og ísraelsk skotmörk í Evrópu.
Ein geymslan var ferðataska grafin í skóglendi nærri búlgörsku borginni Plovdiv. Þar fundust skotvopn og skotfæri eftir að þýskir rannsakendur fundu ljósmyndir af felustaðnum í síma eins hinna grunuðu.
Þýskir saksóknarar hafa sagt að Hamas hafi komið upp niðurgrafnum vopnageymslum í nokkrum Evrópulöndum og notað menn með evrópsk dvalarleyfi til að sinna þeim.
Ísraelska sendiráðið og Ramstein skoðuð
Samkvæmt gögnum úr þýska sakamálinu voru möguleg skotmörk meðal annars ísraelska sendiráðið í Berlín, svæðið við Tempelhof í borginni og bandaríska Ramstein-herstöðin.
NZZ segir að hópurinn hafi fengið fyrirmæli frá leiðtogum Hamas í Líbanon í febrúar 2023 um að flytja vopn til Þýskalands og undirbúa árásir á gyðinga, Ísraela eða Bandaríkjamenn.
Rannsakendur hafa tengt starfsemina við Khalil al-Kharraz, þáverandi aðstoðarforingja hernaðararms Hamas í Líbanon. Hann er sagður hafa haft umsjón með leit að vopnageymslum og samskiptum við mennina í Evrópu áður en hann féll í ísraelskri loftárás í Líbanon í nóvember 2023.
Hamas hafnar tengslum við mennina
Hamas hefur hafnað því að mennirnir sem handteknir hafa verið í Evrópu hafi starfað fyrir samtökin. Samtökin segja ásakanirnar tilraun til að sverta mannorð þeirra og halda því fram að vopnuð barátta þeirra sé bundin við Ísrael og palestínsku svæðin.
Þýskir og austurrískir saksóknarar og öryggisstofnanir hafa hins vegar ítrekað lýst hinum grunuðu sem liðsmönnum eða erlendum aðgerðarmönnum Hamas.
Austurríska leyniþjónustan sagði í nýjustu ársskýrslu sinni að málið gæti markað verulega breytingu á aðferðum Hamas. Staðfestist grunurinn væri ekki lengur aðeins um að ræða fjáröflun og skipulagsaðstoð í Evrópu, heldur undirbúning beinna hryðjuverkaárása á evrópskri grundu.