Halla Tómasdóttir forseti Íslands er stödd á Ítalíu í vinnuferð en síðar í dag mun hún meðal annars funda með Leó páfa.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá embætti forseta Íslands.
Í dag á Halla einkafund með Leó XIV páfa í Vatíkaninu. Að því loknu fundar hún ásamt íslenskum embættismönnum með Pietro Parolin kardinála, æðsta embættismanni páfastóls.
Forsetinn á einnig í dag fund með forseta Ítalíu, Sergio Mattarella, í Quirinale-höllinni í Róm. Að loknum fundi þeirra snæða forsetarnir hádegisverð saman.
Á morgun, 5. maí, heimsækir forseti Íslands norrænu menningarmiðstöðina Circolo Scandinavo í Róm.
Fram kemur í tilkynngunni að miðstöðin hafi það hlutverk að kynna norræna menningu og listir fyrir Ítölum og einnig séu þar listamannaíbúðir fyrir norrænt listafólk.
Lokaviðkomustaður forseta Íslands á morgun eru höfuðstöðvar Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme). Segir í tilkynningunni að um sé að ræða stærstu stofnun Sameinuðu þjóðanna á sviði matvælaaðstoðar og fæðuöryggis. Hún sé einnig áherslustofnun í mannúðarstarfi Íslands og vinni íslensk stjórnvöld m.a. með henni að tvíhliða þróunarsamvinnu.