Herjólfi var siglt til Þorlákshafnar aðfaranótt mánudags þar sem nýr mótor var settur í ferjuna. Í tilkynningu á Facebook-síðu Herjólfs segir að prufusigling hafi farið fram í gærkvöldi og gekk hún vel.
„Við hjá Herjólfi viljum þakka áhöfn Baldurs fyrir ánægjulegt samstarf undanfarnar vikur. Í sumar hefur Baldur flutt rúmlega 28 þúsund farþega og rúmlega 7 þúsund farartæki, fyrir það erum við þakklát. Við óskum Baldri velfarnaðar í sínum siglingum,“ segir í tilkynningunni.
Baldri var siglt um tíma á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar vegna bilunar í mótor Herjólfs.
Sex mánuðir af vandræðum
Vandræði með ferðir Herjólfs hófust í byrjun mars þegar bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesi þegar unnið var að dýpkun Landeyjarhafnar. Við tóku mánuðir þar sem sigla þurfti til Þorlákshafnar nema við kjöraðstæður.
Í apríl bilaði síðan vélbúnaður Herjólfs og þurfti að sigla á takmörkuðu afli. Það lengdi ferðatímann og tók til að mynda ein ferð sex klukkustundir vegna bilunarinnar og veðurs. Mótorinn var sendur í viðgerð til útlanda um miðjan apríl.
Á meðan bæði mótorinn var bilaður og siglt var til Þorlákshafnar komu upp minniháttar atvik, svo sem bilaði hlerinn þaðan sem bílar koma og opnaðist ekki. Þá kviknaði í gagnveri í Amsterdam með þeim afleiðingum að bókunarkerfi Herjólfs lá niðri.
Það var loks í maí sem loks var hægt að sigla til Landeyjahafnar á ný en áfram var Herjólfur með eina skrúfu og sumaráætluninni því frestað. Baldri var þá siglt til Eyja og fóru Herjólfur og Baldur milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.
Viðgerðinni á mótornum seinkaði um þrjár vikur en það var loks á mánudag sem hægt var að hefja viðgerðina á Herjólfi. Svo virðist sem hrakfallasagu Herjólfs sé loks á enda.