Hagnaður Svens meira en tvöfaldaðist
Nikótínrisinn Svens hagnaðist um 320 milljónir á síðasta ári. Sala fyrirtækisins jókst um um 46 prósent milli ára. Nýir eigendur keyptu félagið í vor.
Hagnaður Svens, sem rekur tólf nikótínverslanir á höfuðborgarsvæðinu og netverslun, meira en tvöfaldaðist á síðasta ári. Félagið hagnaðist um 319,8 milljónir króna árið 2025, samanborið við 146,5 milljónir króna árið áður.
Tekjur félagsins jukust einnig mikið. Þær námu 2,4 milljörðum króna á árinu, en voru 1,7 milljarðar króna árið 2024. Það þýðir að sala Svens jókst um 46 prósent milli ára.
Fjárhagsstaða Svens styrktist einnig verulega á árinu. Eigið fé félagsins var 331 milljón króna í lok árs 2025, en var 171 milljón króna ári fyrr. Skuldir félagsins lækkuðu á sama tíma úr 384 milljónum króna í 298 milljónir króna. Handbært fé, það er fé sem félagið hafði tiltækt í lok árs, jókst úr 5 milljónum króna í 225 milljónir króna.
Stjórn Svens leggur til að greiddur verði allt að 250 milljóna króna arður til hluthafa á þessu ári. Á síðasta ári …