Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á víðfeðmum skógareldum sem hafa logað í Suður-Frakklandi frá því fyrr í vikunni. Þeir eiga þó enn eftir að ráða niðurlögum eldsins.
Í það minnsta 400 þurftu að yfirgefa heimili sín í Var-sýslu vegna eldsins sem breiddist hraðar út en búist var við. Sýslan er suðaustarlega í landinu og liggur að Miðjarðarhafinu.
Nærri þúsund slökkviliðsmenn hafa barist við eldana og slökkviflugvélar og -þyrlur voru nýttar við slökkvistörfin.
Gróður hefur verið mjög þurr á þessum slóðum eftir mikinn hita og þurrk sem skapar kjöraðstæður fyrir gróður- og skógarelda.