Sífellt fleiri kjósa að lifa afar sparlega í þeirri von að geta hætt að vinna mörgum árum fyrr en almennt tíðkast. Bresk hjón sem hættu bæði að vinna þegar þau voru 35 og 40 ára segja að markviss sparnaður hafi gert þeim kleift að safna jafnvirði um 170 milljóna íslenskra króna og ná fjárhagslegu sjálfstæði.Frá þessu er greint í umfjöllun BBC um svokallaða FIRE-hreyfingu (Financially Independent, Retire Early), sem hefur notið sívaxandi vinsælda á undanförnum árum.
Hættu að vinna 35 og 40 ára – þetta gerðu þau öðruvísi en flestir