Átök Bandaríkjanna og Írans hafa stigmagnast og hætt við að allsherjarstríð hefjist að nýju.
Bandaríkin hafa gert á annað hundrað árásir á Íran síðasta sólarhringinn og Íranar svöruðu með árásum á bandarísk skotmörk í nágrannaríkjum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Hormússund opið fyrir umferð þrátt fyrir að írönsk stjórnvöld hafi lýst því yfir seint í gær að sundinu yrði lokað um óákveðinn tíma.
Hefndarárásir á báða bóga
Talsmaður Bandaríkjahers sagði herinn hafa gert árásir á minnst 140 skotmörk í Íran í gær. Árásirnar hafi verið í hefndarskyni vegna árása Írana á flutningaskip í Hormússundi.
Sundið er afar mikilvægt fyrir flutning hráolíu úr Persaflóa og Íranar hafa haldið því meira og minna lokuðu síðan stríðið þar hófst í febrúar.
Bandaríkjamenn segjast meðal annars hafa gert árásir á eldflauga- og drónasvæði, skotfærageymslur, fjarskiptanet og strandeftirlitsstöðvar í landinu. Minnst einn lést og tveir særðust í árásunum í suðurhluta Íran samkvæmt íranska ríkismiðlinum.
Íran skaut eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín við Persaflóa til að hefna fyrir loftárásir Bandaríkjanna. Jórdanía, Barein, Katar, Óman og Sameinuðu arabísku furstadæmin urðu öll fyrir árásum.
„Þetta er viðurstyggilegt og veikt fólk,“
Snemma í morgun tilkynntu Íranar að sundið yrði lokað þar til annað yrði ákveðið. Donald Trump Bandaríkjaforseti var aftur á móti á allt öðrum buxum og sagði sundið opið.
Spurður hvort það væri hið rétta í viðtali við bandaríska miðilinn NBC sagðist forsetinn ekki vilja ræða Hormússund frekar af virðingu við minningu vinar síns Lindsay Graham öldungadeildarþingmanns sem lést skyndilega í gær.
„Það er opið. Við sprengdum þá til fjandans í gærkvöld. Þetta er viðurstyggilegt og veikt fólk,“ sagði forsetinn.