Meðan við bíðum er ekki úr vegi að rifja upp fréttir gærdagsins þar sem við fjölluðum um hugsanlega stýrivaxtahækkun.
Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, sagðist í hádegisfréttum RÚV telja hækkun stýrivaxta óhjákvæmilega. Hún spáði 0,25 prósentustiga hækkun.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, sagði í gær að það væri óráð að hækka vexti á morgun. Hann sagði að atburðir erlendis hefðu áhrif á verðbólguna og stýrivextir hefðu ekki áhrif utan landsteinanna.
Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði að hækkun stýrivaxta myndi aðeins þyngja róðurinn enn frekar fyrir fyrirtæki og heimili í landinu.
Þó verðbólga sé enn mikil eru merki um að landsmenn séu farnir að hægja á útgjöldum sínum. Innlend kortanotkun dróst verulega saman í síðasta mánuði þegar fólk hvíldi kreditkortin aðeins.
Góðan dag og velkomin á fréttavakt um stýrivaxtaákvörðun dagsins og viðbrögð við henni.
Greiningardeildir bankanna gera frekar ráð fyrir því að stýrivextir verði hækkaðir aðeins í dag til að bregðast við viðvarandi verðbólgu og verðbólguvæntingum sem hafa lítið gefið eftir.
Tilkynnt verður um ákvörðun peningastefnunefndar klukkan 8:30 og klukkan 9:30 hefst kynningarfundur nefndarinnar með fulltrúum fjölmiðla og fjármálafyrirtækja.