Hægar suðvestlægar eða breytilegar áttir verða yfir landinu í dag. Dálítil rigning eða súld verður norðan- og austantil, en stöku skúrir síðdegis.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
Sunnan heiða verður yfirleitt bjart með köflum og með kvöldinu léttir víða til. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á morgun nálgast lægð úr suðri með vaxandi austan- og norðaustanátt. Útlit er fyrir norðan hvassviðri með suðausturströndinni annað kvöld með rigningu og suðaustan- og austantil undir miðnætti.
Það verður áfram milt veður sunnanlands, einkum suðvestan. Fyrir norðvestan verður heldur svalara.