Gunnar Örn Rúnarsson er látinn

Gunnar Örn Rúnarsson er látinn, 69 ára að aldri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 27. maí síðastliðinn.
Akureyri.net greindi frá andlátið.
Gunnar Örn fæddist á Akureyri 4. júlí 1956 og ólst þar upp. Hann nam skipasmíði við Iðnskólann á Akureyri og starfaði síðar einnig við húsasmíði. Hann vann um árabil sem húsasmiður og verktaki áður en hann tók árið 2000 við starfi umsjónarmanns fasteigna á Akureyrarflugvelli. Þar starfaði hann allt þar til hann lét af störfum árið 2024.
Gunnar Örn var mikill áhugamaður um golf og tók virkan þátt í starfi Golfklúbbs Akureyrar. Þá stundaði hann sjóstangaveiði í áratugi og sinnti einnig félags- og stjórnarstörfum á því sviði. Ensk knattspyrna átti einnig hug hans allan og fylgdist hann grannt með íþróttinni.
Gunnar Örn lætur eftir sig eiginkonu, tvær dætur og fjögur barnabörn.