Nei-flokkarnir krupu allir við altari EES-samningsins í slagnum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst. Þeir spenntu greipar og fóru með trúarjátninguna, sem þeir höfðu sameinast um og sögðu að samningurinn veitti landsmönnum nú þegar öll þau réttindi og lífsgæði sem hægt væri að sækja til Evrópu og full aðild að ESB myndi þar engu við bæta.Æðsti prestur trúboðs Nei-hreyfingarinnar, Ólafur Ragnar Grímsson, virtist því hafa snúið baki við eða gleymt hatrammri baráttu sinni á Alþingi gegn EES samningnum í janúar 1993.
Guðmundur Einarsson skrifar: Bókun 35; part af programmet