16 ára drengur var handtekinn af norsku lögreglunni í Vesterfold, suður af Osló, grunaður um að vera að undirbúa hryðjuverk á leikskóla í Osló.
Norska ríkisútvarpið hefur eftir saksóknara lögreglunnar í suðaustur-lögregluumdæmi, Lise Dalhaug, að lögreglu hafi borist nafnlaus ábending frá einstaklingi erlendis sem lét vita af hótunum drengsins á ýmsum samfélagsmiðlum. Drengurinn var handtekinn í júní en ekki var greint frá handtökunni fyrr en í gær.
Drengurinn hefur verið vistaður í einangrun á unglingadeild fangelsis síðan hann var handtekinn en talin er mikil hætta á því að hann fremji alvarlegan glæp ef honum verður sleppt. Hann er sagður sýna lítil merki um iðrun eða skömm.
Virðist hafa skipulagt árásina í þaula
Í skriflegri stefnuyfirlýsingu drengsins kom fram stuðningur hans við Adolf Hitler og norska hryðjuverkamanninn Anders Behring Breivik. Þá hafði hann gert ítarlega áætlun um framkvæmd árásarinnar með upplýsingum um tímasetningar, framkvæmd og lista yfir búnað til árásarinnar.
Rannsókn lögreglunnar bendir til að hann hafi einn skipulagt árásina. Norska dagblaðið Aftenposten sagði að drengurinn hefði ætlað að ráðast á leikskóla með öxum og hnífum en lögreglan vildi ekki staðfesta það.
Lögregla vonast til að ljúka rannsókn málsins í lok september og verði drengurinn fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér strangan dóm.