Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar grjóthrun varð hjá Holtsnúpi undir Eyjafjöllum fyrr í dag. Vegfarandi sem átti leið hjá sendi DV meðfylgjandi myndir.„Það er bara heppni að enginn bíll hafi fengið þetta í hliðina því það er töluverð umferð hérna,” segir vegfarandinn í samtali við blaðamann.Banaslys varð á þessum slóðum á síðasta ári þegar grjót féll á bifreið með þeim afleiðingum að kona lést. Búið er að koma upp varnargörðum en eins og sést á myndunum máttu þeir síns lítils og fór einn hnullungurinn í gegnum varnirnar.
Grjót hrundi á veginn þar sem banaslys varð í fyrra: „Heppni að enginn fékk þetta í hliðina“