Grindvíkingar komu saman á Austurvelli í Reykjavík í hádeginu fyrir framan Alþingishúsið. Þeir mótmæltu því að fasteignafélagið Þórkatla, sem keypti heimili Grindvíkinga, væri ekki búið að kynna endurkaupaáætlun og hygðist takmarka veru fólks í húsum.
Um fimmtíu Grindvíkingar tóku þátt í mótmælunum og nokkrir þingmenn komu út og ræddu við fólkið.
Kristín María Birgisdóttir, einn af skipuleggjendum mótmælanna, segir það algjörlega galið að Þórkatla ætli að setja tólf gistinótta hámark á dvöl Grindvíkinga sem hafa selt félaginu íbúðir sínar og gert samning um áframhaldandi notkun húsanna. Hún sagði að þetta væri til þess fallið að drepa bæjarfélagið niður.
Hún biðlaði til ráðamanna að hafa meira samráð við bæjaryfirvöld og íbúa um að skapa sátt svo allir gætu þrifist og verið innan bæjarins. „Við höfum farið í milljarða framkvæmdir í að verja hann með varnargörðum. Til hvers er sú fjárfesting ef við ætlum síðan að láta hann drabbast niður með því að banna fólki að vera þarna?“