Góðærisástand ríkir nú hjá ísframleiðendum að sögn Valdimars Hafsteinssonar, framkvæmdastjóra Kjöríss, en sólin hefur verið dugleg að láta sjá sig undanfarna daga og eru borgarbúar gjarnir á að stökkva út í næstu ísbúð á slíkum góðviðrisdögum.
Valdimar segir söluna taka risastökk í svona veðri, sérstaklega þegar það lendir á helgi.
„Við vorum svo sem búin að sjá veðurspána fyrir helgina og gerum þá ráð fyrir því. Þá bætum við í framleiðsluna vikuna áður, við þurfum að eiga nóg magn á lager þegar stefnir í svona helgar.“
Kostur að Íslendingar borða ís allt árið
Aðspurður segir hann ísinn ekki vera að klárast.
„Það getur helst verið ísblandan sem fer í ísvélarnar, hún hefur styttra geymsluþol og þá þurfum við aðeins að skoða veðurspárnar því þegar stefnir í góða veðurdaga marga daga í röð þarf að eiga nóg á lager, en það er ekki að klárast núna allavega.“
Heppilegt segir hann að annars geymist ís vel í frosti svo alltaf sé til nóg af íspinnum og slíku.
„Svo þurfum við að fá rigningu inn á milli til að minna okkur á hvað góða veðrið er gott á Íslandi,“ segir Valdimar og bætir við að þó sé mikill kostur við Íslendinga að þeir borði ís allt árið um kring.