Bandaríska leikkonan Glenn Close, sem lengi hefur verið talin meðal fremstu leikara Hollywood sem aldrei hafa hlotið Óskarsverðlaun, mun nú brátt fá sína eigin styttu í hendurnar.
Bandaríska kvikmyndaakademían tilkynnti í gær að Close yrði sæmd heiðursóskarsverðlaunum fyrir ævistarf sitt á Governors Awards-verðlaunahátíðinni í nóvember næstkomandi.
Close, sem verður áttræð á næsta ári, hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna átta sinnum á ferlinum, fyrst árið 1983 fyrir hlutverk sitt í The World According to Garp. Þá hefur hún einnig verið tilnefnd fyrir leik sinn í Fatal Attraction og síðast fyrir Hillbilly Elegy árið 2020. Þrátt fyrir fjölda tilnefninga hefur hún hins vegar aldrei unnið.
Breski leikarinn Peter O’Toole hlaut einnig átta tilnefningar án þess að vinna styttu, en hann hlaut heiðursviðurkenningu akademíunnar árið 2002. Þó hún hafi ekki unnið til Óskarsverðlauna hefur Close þó hlotið aðrar virtar viðurkenningar, þar á meðal Emmy-, Tony-, Grammy- og Golden Globe-verðlaun.
Ásamt Close verða leikstjórinn Ridley Scott og teiknimyndagerðarmaðurinn Floyd Norman heiðraðir á hátíðinni. Í tilkynningu akademíunnar segir að Close hafi skapað sumar af eftirminnilegustu persónum kvikmyndasögunnar.
Ridley Scott, sem er 88 ára gamall, hefur leikstýrt mörgum af þekktustu kvikmyndum síðustu áratuga, þar á meðal Alien, Blade Runner og Gladiator. Þrátt fyrir fjórar Óskarstilnefningar hefur hann aldrei unnið verðlaunin.
Floyd Norman á að baki 65 ára feril í teiknimyndagerð. Hann varð árið 1956 fyrsti svarti teiknarinn hjá Walt Disney Animation Studios og kom að gerð kvikmynda á borð við Sleeping Beauty, The Jungle Book og Robin Hood. Síðar vann hann einnig að myndum á borð við Mulan, Toy Story 2 og Monsters, Inc.
Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn 15. nóvember í Ray Dolby Ballroom í Hollywood.