Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnenda Áfram-Ísland og forstjóri fasteignafélagsins Heima, gerir ráð fyrir því að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri muni beita sér af fullum þunga þegar nær dregur að þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðildarviðræður.
Seðlabankastjórinn hafi áður sagt að rótarorsökin fyrir háum stýrivöxtum í íslensku hagkerfi séu miklar launahækkanir, umfram það sem samið er um í kjarasamningum.
Telur að atvinnuleysi aukist án krónunar
Halldór Benjamín var gestur í Vikulokunum í dag ásamt Snærós Sindradóttur, framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar og eiganda listagallerísins Sind.
Hann segir Ísland vera sveiflukennt hagkerfi og í dag sé gengi krónunnar eins konar ventill í hagkerfinu. Hann telji veruleikann verða allt annan taki Ísland upp evru.
Núna höfum við gengi krónunnar sem er svona ventillinn í hagkerfinu sem við getum stillt okkur af með ef við yfirskjótum okkur á vinnumarkaði. Ef við höfum hann ekki þá myndast einhver annar ventill, vegna þess að í öllum kerfum þar sem þrýstingur myndast leitar þrýstingurinn í minnsta farveg og losnar út með einhverjum hætti. Hver er þessi þrýstingur undir fastgengi? Það liggur fyrir, það er atvinnuleysi.
Kannast ekki við veruleika Halldórs og félaga
Snærós svaraði Halldóri og sagði það að fella gengi krónunnar ekki bara vera einhvern ventil.
„Ég er ekki viss um að almenningur átti sig á því að það að fella gengi krónunnar eða ekkert nema launalækkun þvert á línuna.“
Hún kannaðist ekki við þann veruleika sem Halldór Benjamín vísaði til, um að laun væru of há. Þá benti hún á að hann væri formaður fasteignafélagsins Heimar, sem hagnist beinlínis á því að verðbólga fari upp með verðtryggðum leigusamningum.
Það sést bara í ársreikningum Heima. Þannig að þetta eru félög sem veðja með því að hér sé áfram verðbólga og hvað þýðir verðbólga? Jú, hún étur upp launin. Þannig að verkalýðshreyfingin þarf að semja á hverju einasta ári eða að semja um launahækkanir á hverju einasta ári. Svo kemur Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri og skammar fólk fyrir að vera með of há laun. Ég hef aldrei verið með of há laun og ég bara þekki ekki þennan veruleika sem Halldór Benjamín lifir í og hans félagar.
Hægt er að hlusta á viðræðurnar í Vikulokunum í heild sinni í spilaranum hér að neðan.