Val á handhafa jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur, sem tilkynnt var um fyrr í dag, hefur sætt nokkurri gagnrýni innan Evrópuráðsþingsins. Að sögn Sigríðar Á. Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, gengu nokkrir þingmenn út er sigurvegari verðlaunanna var tilkynntur.
Verðlaunin voru meðal annars veitt slóvensku grasrótarsamtökunum My Voice, My Choice: For safe and Accessible Abortion á þingfundi Evrópuráðsþingsins í Strassborg í dag.
„Ég heyrði að þingmenn voru aðeins að tala um þetta og að einhverju leyti var það samþykkt hjá nokkrum að ef þessi samtök fengju verðlaunin að ganga þá út,“ segir Sigríður.
Sjálf segist hún ekki hafa gengið út og að hún viti ekki nákvæmlega hversu margir hafi gert það.
Verðlaunin pólitísk viðurkenning á umdeildu átaki
Samtökin sem um ræðir hafa barist fyrir yfirráðarétti kvenna yfir líkama sínum og jöfnu aðgengi að þungunarrofi í Slóveníu en gagnrýnendur ákvörðunarinnar hafa sett út á verið séð að veita umdeildu átaki innan stofnanakerfis ESB pólitíska viðurkenningu.
Dr. Malte Kaufmann, þingmaður fjarhægriflokksins AfD á þýska sambandsþinginu, var meðal þeirra sem mótmæltu tilnefningu samtakanna til verðlaunanna áður en þau voru veitt og bað um að tilnefningin yrði endurskoðuð.
Tekur undir gagnrýnina
Sigríður segist geta tekið undir þessa gagnrýni í ljósi þess að verðlaunin séu ætluð einstaklingum eða samtökum sem hafa sýnt samstöðu með konum og valdeflt þær.
„Í þessu stóra samhengi finnst mér alveg hægt að spyrja sig hvort það hefði ekki verið betur til þess fallið að veita verðlaun fyrir starf sem vekur ekki upp þessar tilfinningar eins og þessi fóstureyðingarumræða gerir,“ segir Sigríður.
Tvenn önnur samtök voru tilnefnd til verðlaunanna en þau hafa annars vegar sinnt HIV-smituðum konum og börnum þeirra og hins vegar unnið með ungum konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi.
Sigríður segir að einnig sé vert að velta upp þeirri spurningu hvort einhver skortur sé á fóstureyðingum í Evrópu. Hún segir að tvö ríki í Evrópusambandinu banni enn fóstureyðingar og að það sé innanríkismál þeirra ríkja að bæta úr því ef menn meti það svo.
