Gagn­rýni á John Snorra ómálefna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir

Gagn­rýni á John Snorra ómálefna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir

Gagn­rýni á John Snorra ómálefna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir

Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunnarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar.

Einar fer yfir málið í nýjasta þætti Eftirmála og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför.

Einar hafnar því að leiðangurinn hafi verið vanhugsaður og telur að John Snorri hafi orðið fyrir slysi sem hann gat hvorki séð fyrir né komið í veg fyrir.

„Sterkt ljós“ frá John Snorra

John Snorri var 47 ára, eiginmaður Línu Móeyjar Bjarnadóttur og faðir sex barna. Hann fæddist í Ölfusi, ólst upp við sveitastörf og útivist og lýsti sjálfum sér gjarnan sem einföldum sveitastrák úr Ölfusi.

Hann byrjaði ekki að reyna við hæstu tinda heims fyrr en um fertugt en varð á örfáum árum einn reynslumesti háfjallaklifrari Íslands. Einar kynntist John Snorra í tengslum við K2-verkefnin og segir að nærvera hans hafi haft sterk áhrif á fólk.

„Ég myndi flokka mig sem vin Johns Snorra og var honum innan handar á síðustu árunum, í kringum K2-verkefnin, með ráðgjöf í almannatengslum og fjáröflun. Þegar maður hitti hann og talaði við hann var svo sterkt ljós frá honum og mikil orka. Það var gaman að vera í verkefnum með svona fólki. 

Ég var ekki að vinna fyrir hann á einhverjum fjárhagslegum forsendum. Mér fannst þetta bara alveg magnað.

K2 er 8.611 metra hátt og þekkt fyrir mikinn bratta, grjóthrun, snjóflóð, storma, súrefnisskort og gífurlegan kulda. 

Þegar John Snorri reyndi fyrst við fjallið, um sumarið árið 2017, höfðu aðeins rúmlega tvö hundruð manns náð tindinum á um hálfrar aldar tímabili.

Fyrsti Íslendingurinn á toppinn

Nokkrum dögum áður en John Snorri hélt í leiðangurinn árið 2017 ræddi Nadine Guðrún Yaghi, annar umsjónarmanna Eftirmála, við hann. 

John Snorri sagði fjallið lengi hafa verið „í maganum“ á sér. Eftir að faðir hans lést úr krabbameini skömmu fyrir jól ákvað hann að rétti tíminn væri kominn.

Hann lagði áherslu á að markmiðið væri ekki aðeins að komast á toppinn heldur einnig að koma heill heim. Fjölskyldan hefði gefið honum loforð um að snúa við ef aðstæður yrðu of hættulegar.

John Snorri náði tindi K2 þann 28. júlí 2017 og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til þess að ná þeim áfanga. Ferðin frá grunnbúðum tók fimm daga og lokakaflinn varð lengri og erfiðari en áætlað hafði verið. Á tindinum kom hann íslenska fánanum fyrir og þakkaði Línu fyrir stuðninginn. Þreytan var gríðarleg en hann átti enn eftir hættulegu leiðina niður.

Vildi vinna síðasta stóra afrekið

Eftir heimkomuna vildi John Snorri snúa aftur og verða fyrstur manna til að klífa K2 að vetrarlagi. 

K2 var þá eina fjallið yfir átta þúsund metrum sem engum hafði tekist að klífa að vetri.

Einar segir í þættinum að John Snorri hafi séð fyrir sér að sögulegt afrek gæti orðið grunnur að nýjum kafla í lífi hans.

„Hann langaði náttúrulega að verða fyrstur til að gera þetta. Ef honum hefði tekist það væri hann kominn á ákveðinn stað í þessum geira. Flestir sem fara þessa leið verða þekktir á fyrirlestrahringnum í heiminum og ferðast á milli landa við aðeins huggulegri aðstæður en uppi á fjalli. Þá hefði hann verið John Snorri frá Íslandi, fyrsti maðurinn til að klífa K2 að vetri til. 

Það var hluti af því sem hann sá fyrir sér.

Einar segir þó mikilvægt að rugla ekki saman stærð markmiðsins og óraunsæi. John Snorri hafi haft reynsluna, líkamlega getu og þekkingu til að eiga raunhæfan möguleika á því að ná þessu stóra markmiði.

Kostaði á annan tug milljóna

Háfjallaleiðangurinn krafðist mikils undirbúnings og fjármagns. Í desember 2019 vantaði John Snorra lokahnykkinn í fjármögnunina og gekk því upp að Steini í Esjunni og niður aftur 24 sinnum á 24 klukkustundum. Uppátækið vakti mikla athygli og almenningur gat lagt fé í ferðasjóðinn.

„Mig minnir að það hafi þurft átján, tuttugu eða tuttugu og tvær milljónir í þetta. Tryggingar eru stór hluti af svona fjárhagsáætlun. Þar eru líka peningar til pakistanska hersins, svo hann sé tilbúinn að taka þátt í björgunaraðgerðum ef til þess kemur. Svo er aðstoðarfólkið sem fer upp með viðkomandi. Þetta er gríðarlegur kostnaður.“

John Snorri og Lína gengu í hjónaband milli jóla og nýárs. Skömmu síðar hélt John Snorri til Pakistan og hóf fyrstu tilraun sína til að klífa K2 að vetri.

Tilraunin fór ekki eins og áætlað var. Menn úr hópnum veiktust, slösuðust eða hættu við og að lokum voru of fáir eftir til að halda áfram. Hópurinn komst í um 6.500 til 6.600 metra hæð.

Hann ætlaði sér að klára þetta. Verkefninu var bara ólokið.

Enginn dró getu hans í efa

John Snorri sneri aftur til Pakistan í nóvember 2020. Með honum voru pakistanski fjallgöngumaðurinn Ali Sadpara, sonur hans Sajid Sadpara og Sílemaðurinn Juan Pablo Mohr. Ali var einn þekktasti fjallgöngumaður Pakistans. 

Í þættinum er lögð áhersla á að mennirnir hafi verið samherjar með sameiginlegt markmið en ekki þannig að Pakistanarnir væru aðeins burðarmenn Johns Snorra.

John Snorri hafði unnið að undirbúningnum frá því um vorið. Ekkert mátti vanta, enda gat eitt stykki af gleymdum eða biluðum búnaði bundið enda á leiðangurinn.

„Ég er ekki sérfræðingur í þessu, en það sem ég heyrði þegar ég ræddi við fólk sem hafði innsýn í þetta, bæði hér og erlendis, var að enginn dró það í efa að hann gæti þetta. Enginn hafði gert þetta áður og það var auðvitað ekki auðvelt. 

En ef einhver gæti hugsanlega gert það, þá var hann einn af þeim. Efasemdirnar náðu ekki lengra en það.

Fyrstu vikurnar fóru í að leggja línur, koma upp búðum og aðlagast hæðinni. Á sama tíma varð ljóst að fleiri hópar ætluðu sér sama sögulega afrek.

Varð ekki fyrstur

Opinberlega var því hafnað að bein keppni væri á milli hópanna. Hver þeirra fylgdi eigin áætlun og beið eftir sínum veðurglugga. Eftir sem áður vildi aðeins einn verða fyrstur.

Í lok desember komust John Snorri, Ali og Sajid í aðrar búðir í um 6.600 metra hæð. John Snorri lýsti ferðinni sem mjög erfiðri. Mikið grjóthrun var á leiðinni, broddar á öðrum fæti hans losnuðu og hitinn var um þrjátíu gráður undir frostmarki.

Þann 16. janúar 2021 náði hópur nepalskra fjallgöngumanna tindinum. Þar með varð ljóst að John Snorri yrði ekki fyrstur.

Sama dag lést spænski fjallgöngumaðurinn Sergi Mingote eftir að hafa runnið hundruð metra niður fjallið. Skömmu síðar fannst Bandaríkjamaðurinn Alex Goldfarb látinn.

John Snorri og félagar héldu áfram að bíða eftir réttu aðstæðunum. Veðrið var óstöðugt og fyrri tindatilraun þeirra fór út um þúfur.

Lokaferðin upp fjallið

Seint að kvöldi 4. febrúar 2021 var tilkynnt að John Snorri og félagar hans væru lagðir af stað á tindinn.

Þeir höfðu komið í þriðju búðir fyrr um daginn en lítið náð að hvílast. Þrír aðrir fjallgöngumenn leituðu skjóls í tjaldi þeirra og voru því sex saman í litlu tjaldi.

Á leiðinni bilaði súrefnisbúnaður Sajids. Hann neyddist til að snúa við en sá John Snorra, föður sinn Ali og Juan Pablo síðast við flöskuhálsinn um klukkan fimm að morgni 5. febrúar.

Mennirnir voru þá í um 8.200 metra hæð, aðeins um 400 metrum frá tindinum. Eftir það heyrðist ekkert frá þeim.

Í Eftirmálum er Einar spurður hvort vonbrigðin yfir því að nepalski hópurinn hafi orðið fyrstur kunni að hafa ýtt John Snorra af stað við of hættulegar aðstæður.

„Hann hafði metið það þannig að það væri of hættulegt þegar hinir fóru, annars hefði hann farið þá. Þess vegna var ég viss um að þegar hann lét til skarar skríða væri hann með skýra mynd af því að nú væri í lagi að fara. Hann hafði verið kaldur og ákveðið að fara ekki þegar hinir fóru. 

Ég held ekki að hvatinn til þess að verða annar hafi verið svo mikill að hann hafi misst hausinn. Ég held að hann hefði frekar farið niður en að taka meiri áhættu en hinir.

Beðið eftir sambandi

Þegar leið á 5. febrúar án þess að nokkuð heyrðist birti Lína upplýsingar á samfélagsmiðlum. Hún benti á að mennirnir þyrftu að einbeita sér að göngunni og að rafhlöður entust illa í kuldanum.

Klukkustundirnar liðu án frétta. Mennirnir voru lýstir týndir og pakistanski herinn hóf umfangsmikla leit með þyrlum. Bæði John Snorri og Juan Pablo voru með gervihnattasíma en ekki tókst að staðsetja þá. Þyrlurnar komust ekki alla leið upp í þá hæð þar sem mennirnir sáust síðast. Ský, myrkur og gífurlegur kuldi torvelduðu leitina.

„Þegar ekkert hafði spurst til þeirra í þrjá eða fjóra sólarhringa voru líkurnar á að þeir væru á lífi orðnar mjög litlar. Þá fór maður að átta sig á því að John Snorri kæmi ekki aftur. Fram að því vonaðist maður auðvitað eftir einhverju kraftaverki en á ákveðnum tímapunkti var ekki hægt að sjá að þetta gæti endað öðruvísi.“

Gagnrýnin hófst

Á meðan fjölskylda og vinir vonuðust eftir fréttum fór af stað hörð umræða um leiðangurinn. 

Fólk spurði hvers vegna sex barna faðir hefði lagt sig í slíka hættu og gagnrýndi kostnaðinn við leitina.

„Þegar það var orðið nokkuð augljóst að hann væri látinn þá byrjaði gagnrýnin. Fólk spurði af hverju menn væru að gera þetta og talaði um að það væri dýrt að fara upp að bjarga honum, eins og þetta hefði verið gert í hugsunarleysi. Það var slitið úr öllu samhengi og gagnrýnin mjög ómálefnaleg. Þetta var ekki einhver miðaldurskrísa þar sem nokkrir strákar ákváðu að gera eitthvað geggjað. Hann var búinn að æfa þetta og fara aftur og aftur í þessar aðstæður.“

Einar bendir á að tryggingar og greiðslur vegna mögulegra björgunaraðgerða hafi verið hluti af fjárhagsáætluninni. Áhættan hafi verið gríðarleg.

„Hann vissi alveg að eitt lítið „feil“ gat orðið niðurstaðan. Í öllum þessum verkefnum þarf bara eitthvað örlítið út af að bregða og þá ertu dáinn. Hann var að fara í erfiðustu aðstæðurnar af öllum, á erfiðasta fjallið að hávetri. Það eiga margir erfitt með að skilja af hverju einhver setur sig í þær aðstæður. En þegar þú færð tækifæri til að gera eitthvað sem virðist ómennskt og skrifa þig á spjöld sögunnar er þetta gjaldið sem menn greiða ef það mistekst.“

Lýstir látnir

Þann 8. febrúar sagði fjölskylda Johns Snorra vonina um að mennirnir fyndust á lífi orðna mjög litla. Leitinni var haldið áfram en án árangurs.

Þann 18. febrúar, þrettán dögum eftir að síðast sást til þeirra, lýstu pakistönsk stjórnvöld John Snorra, Ali og Juan Pablo látna.

Fjölskylda Johns Snorra taldi að mennirnir hefðu náð tindinum en lent í vandræðum á niðurleiðinni. Sú niðurstaða byggðist meðal annars á staðsetningu þeirra þegar Sajid sá þá síðast og tímasetningu merkja frá síma Johns Snorra.

Einar segir að margir sem gagnrýndu ákvörðunina hafi engann veginn getað sett sig í  spor Johns Snorra.

„Margir spurðu hvað maðurinn væri eiginlega að pæla og sögðu: „Ég myndi aldrei gera þetta. En þú getur þetta hvort sem er ekki. Þú átt ekki möguleika á Íslandsmeti eða því að verða fyrstur til að gera eitthvað af þessu tagi. Þú getur ekki sett þig í þessi spor. Þú átt í raun ekkert erindi í það samtal.“

Lína með í ákvörðununum

Einar leggur áherslu á að Lína hafi þekkt áhættuna sem fylgdi leiðangrinum. John Snorri hafi hvorki haldið upplýsingum frá henni né tekið ákvörðunina einn.

„Þegar við vorum að funda um þetta komu þau saman. Hann var ekki að fela áhættuna fyrir henni; það hefði verið galið. Í hvert skipti sem við settumst niður og fórum yfir verkefnið var hún með honum. Hún þekkti manninn sinn og vissi hvað hann gat. Ef hún hefði ekki viljað að hann færi hefði hann örugglega ekki farið.“

Lína hafði sjálf reynslu af fjallamennsku og sagði síðar að þau hjónin hefðu verið samstiga um að skapa líf sem væri þess virði að lifa. John Snorri hefði haft fullan stuðning hennar við að elta drauminn um K2.

Fundust fimm mánuðum síðar

Í lok júní 2021 sneri Sajid aftur á K2 til að leita að föður sínum og samferðamönnum hans. Í lok júlí fundust lík mannanna í rúmlega átta þúsund metra hæð, skammt frá flöskuhálsinum.

Staðsetning þeirra og búnaður þóttu benda til þess að þeir hefðu verið á leið niður. Úkraínski fjallgöngumaðurinn Valentin Sipavin lýsti því síðar að John Snorri hefði hangið hnipraður í reipi og verið vettlingalaus á vinstri hendi.

Ein kenningin er sú að reipafesting hafi brotnað og John Snorri lent í sjálfheldu. Til að losa sig hefði hann þurft að klifra nokkra metra án líflínu, mögulega í myrkri og orðið örmagna.

Ekki hefur verið staðfest hvað gerðist eða hvort mennirnir náðu tindinum.

„Í mínum huga varð hann fyrir slysi. Þetta var eitthvað sem gerðist utan hans yfirráða,“ segir Einar.

Greiddu dýrasta verðið

Lík Ali og Juan Pablo voru síðar færð og grafin saman. Jarðneskar leifar Johns Snorra voru hins vegar á erfiðari stað og of hátt uppi til að þyrla gæti sótt þær.

Sumarið 2022 fór Lína ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum til Pakistans. Heitasta ósk fjölskyldunnar var að koma John Snorra heim og jarðsetja hann á Íslandi.

Pakistanskir fjallgöngumenn reyndu að færa líkið en urðu frá að hverfa vegna snjóflóðahættu. Fjölskyldan lagði áherslu á að hún vildi ekki stofna lífi annarra í hættu.

„Ef þau hjónin og þeirra umhverfi höfðu metið þetta sem raunhæfan möguleika var það þeirra að ákveða það. Þetta var þeirra líf og þeirra mat. Fólk utan frá getur ekki sett sig að fullu í þeirra spor. En þau greiddu dýrasta verðið fyrir ákvörðunina.“

Hefði verið stórkostlegt afrek

Jarðneskar leifar Johns Snorra eru enn á sama stað á K2. Spurningunni um hvort hann, Ali og Juan Pablo hafi náð tindinum verður mögulega aldrei svarað.

Einar bendir á að viðbrögð samfélagsins hefðu orðið allt önnur ef John Snorri hefði skilað sér niður.

„Hefði hann komist á toppinn og niður aftur hefði þetta bara verið stórkostlegt afrek. Enginn hefði talað um ábyrgðarleysi með sama hætti. Hvort hann hefði þá stoppað og farið á fyrirlestravagninn eða haldið áfram fáum við aldrei að vita. Við fáum aldrei að vita hvaða leið hann hefði valið.“

Eftir standa spurningarnar sem fjölskylda, vinir og fjallamenn hafa velt fyrir sér frá árinu 2021. Náðu mennirnir tindinum? Kom þeim á óvart óveður, brotin reipafesting eða annað slys? Voru þeir orðnir of örmagna til að komast áfram?

Engin ein skýring hefur verið staðfest.

„Mér finnst mikilvægt að halda minningu Johns Snorra á lofti, bæði vegna afrekanna sem honum tókst að vinna og vegna þess að hann var einstakur karakter,“ segir Einar jafnframt.

„Það er eiginlega ekki hægt að lýsa hugarfarinu og orkunni sem fylgdi honum. Ég efaðist aldrei um andlega eða líkamlega getu hans. Alveg fram á síðustu sólarhringana var ég viss um að hann tæki réttar ákvarðanir. Ég var viss um að hann myndi ná þessu.“

#gagnrýni #john #slitin #snorra #ómálefnaleg


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262912476d/gagn-ryni-a-john-o-mal-efna-leg-og-slitin-ur-ollu-sam-hengi

📰 Aðrar fréttir

Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 0
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 0
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 0
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 1
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 1
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 1
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 0
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.
Island Hopping in Greece and where to base yourself
📅 25.10.2026 👁️ 1
Island Hopping in Greece and where to base yourself
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
📅 25.10.2026 👁️ 1
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
📅 25.10.2026 👁️ 1
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
📅 25.10.2026 👁️ 0
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
Serbia is heading to the polls as a student movement attempts to oust longtime populist leader Aleksandar Vučić.
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
📅 25.10.2026 👁️ 2
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
Mynd Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út rét
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
📅 25.10.2026 👁️ 3
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
📅 25.10.2026 👁️ 1
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vind­orku­verið á Íslandi hefur verið gang­sett og fleiri eru áformuð. Yfir fjöru­tíu hug­myndir eru um v...
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 1
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
📅 25.10.2026 👁️ 1
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
📅 25.10.2026 👁️ 0
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
The International Weightlifting Federation becomes the first Olympic federation to choose Russia to host a world championships since its invasion of U...
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála e...
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá...
Laxveiði jókst um 35% milli ára
📅 25.10.2026 👁️ 2
Laxveiði jókst um 35% milli ára
12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.Þetta ke...
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæð...
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
📅 25.10.2026 👁️ 2
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
Leanne Gregory, from Stapleford in Nottinghamshire, died trying to save her sons swept out to sea.
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
📅 25.10.2026 👁️ 2
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju Fréttin25. október 2026Eldur Smári, Innlent, ÍþróttirLeave a Comment Emin Kadri. Eldur Smári...
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
📅 25.10.2026 👁️ 2
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frum...
LA PERDITION – Glötun Frakklands
📅 25.10.2026 👁️ 2
LA PERDITION – Glötun Frakklands
LA PERDITION – Glötun Frakklands Fréttin25. október 2026Erlent, Hælisleitendur, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrif...
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 3
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
📅 25.10.2026 👁️ 3
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvæg...
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar og fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs, spyr Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfus...
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Sama...
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síð...
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 3
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Ljóst að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 2
Ljóst að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
📅 25.10.2026 👁️ 3
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi for...
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem ...
Málverkið af danska kónginum
📅 25.10.2026 👁️ 3
Málverkið af danska kónginum
Málverkið af danska kónginum Í Frið­riks­borg­ar­höll­inni á Norður – Sjálandi má sjá mál­verk af dönskum þjóð­höfð­ingjum, langt aftur í aldir. Fyrst...
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá he...
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýn...
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíð...
Vetrartími í Evrópu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vetrartími í Evrópu
Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ei...
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
📅 25.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...