Gagn­rýni á John ó­mál­efna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir

Gagn­rýni á John ó­mál­efna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir

Gagn­rýni á John ó­mál­efna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir

Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunnarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar.

Einar fer yfir málið í nýjasta þætti Eftirmála og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför.

Einar hafnar því að leiðangurinn hafi verið vanhugsaður og telur að John Snorri hafi orðið fyrir slysi sem hann gat hvorki séð fyrir né komið í veg fyrir.

„Sterkt ljós“ frá John Snorra

John Snorri var 47 ára, eiginmaður Línu Móeyjar Bjarnadóttur og faðir sex barna. Hann fæddist í Ölfusi, ólst upp við sveitastörf og útivist og lýsti sjálfum sér gjarnan sem einföldum sveitastrák úr Ölfusi.

Hann byrjaði ekki að reyna við hæstu tinda heims fyrr en um fertugt en varð á örfáum árum einn reynslumesti háfjallaklifrari Íslands. Einar kynntist John Snorra í tengslum við K2-verkefnin og segir að nærvera hans hafi haft sterk áhrif á fólk.

„Ég myndi flokka mig sem vin Johns Snorra og var honum innan handar á síðustu árunum, í kringum K2-verkefnin, með ráðgjöf í almannatengslum og fjáröflun. Þegar maður hitti hann og talaði við hann var svo sterkt ljós frá honum og mikil orka. Það var gaman að vera í verkefnum með svona fólki. 

Ég var ekki að vinna fyrir hann á einhverjum fjárhagslegum forsendum. Mér fannst þetta bara alveg magnað.

K2 er 8.611 metra hátt og þekkt fyrir mikinn bratta, grjóthrun, snjóflóð, storma, súrefnisskort og gífurlegan kulda. 

Þegar John Snorri reyndi fyrst við fjallið, um sumarið árið 2017, höfðu aðeins rúmlega tvö hundruð manns náð tindinum á um hálfrar aldar tímabili.

Fyrsti Íslendingurinn á toppinn

Nokkrum dögum áður en John Snorri hélt í leiðangurinn árið 2017 ræddi Nadine Guðrún Yaghi, annar umsjónarmanna Eftirmála, við hann. 

John Snorri sagði fjallið lengi hafa verið „í maganum“ á sér. Eftir að faðir hans lést úr krabbameini skömmu fyrir jól ákvað hann að rétti tíminn væri kominn.

Hann lagði áherslu á að markmiðið væri ekki aðeins að komast á toppinn heldur einnig að koma heill heim. Fjölskyldan hefði gefið honum loforð um að snúa við ef aðstæður yrðu of hættulegar.

John Snorri náði tindi K2 þann 28. júlí 2017 og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til þess að ná þeim áfanga. Ferðin frá grunnbúðum tók fimm daga og lokakaflinn varð lengri og erfiðari en áætlað hafði verið. Á tindinum kom hann íslenska fánanum fyrir og þakkaði Línu fyrir stuðninginn. Þreytan var gríðarleg en hann átti enn eftir hættulegu leiðina niður.

Vildi vinna síðasta stóra afrekið

Eftir heimkomuna vildi John Snorri snúa aftur og verða fyrstur manna til að klífa K2 að vetrarlagi. 

K2 var þá eina fjallið yfir átta þúsund metrum sem engum hafði tekist að klífa að vetri.

Einar segir í þættinum að John Snorri hafi séð fyrir sér að sögulegt afrek gæti orðið grunnur að nýjum kafla í lífi hans.

„Hann langaði náttúrulega að verða fyrstur til að gera þetta. Ef honum hefði tekist það væri hann kominn á ákveðinn stað í þessum geira. Flestir sem fara þessa leið verða þekktir á fyrirlestrahringnum í heiminum og ferðast á milli landa við aðeins huggulegri aðstæður en uppi á fjalli. Þá hefði hann verið John Snorri frá Íslandi, fyrsti maðurinn til að klífa K2 að vetri til. 

Það var hluti af því sem hann sá fyrir sér.

Einar segir þó mikilvægt að rugla ekki saman stærð markmiðsins og óraunsæi. John Snorri hafi haft reynsluna, líkamlega getu og þekkingu til að eiga raunhæfan möguleika á því að ná þessu stóra markmiði.

Kostaði á annan tug milljóna

Háfjallaleiðangurinn krafðist mikils undirbúnings og fjármagns. Í desember 2019 vantaði John Snorra lokahnykkinn í fjármögnunina og gekk því upp að Steini í Esjunni og niður aftur 24 sinnum á 24 klukkustundum. Uppátækið vakti mikla athygli og almenningur gat lagt fé í ferðasjóðinn.

„Mig minnir að það hafi þurft átján, tuttugu eða tuttugu og tvær milljónir í þetta. Tryggingar eru stór hluti af svona fjárhagsáætlun. Þar eru líka peningar til pakistanska hersins, svo hann sé tilbúinn að taka þátt í björgunaraðgerðum ef til þess kemur. Svo er aðstoðarfólkið sem fer upp með viðkomandi. Þetta er gríðarlegur kostnaður.“

John Snorri og Lína gengu í hjónaband milli jóla og nýárs. Skömmu síðar hélt John Snorri til Pakistan og hóf fyrstu tilraun sína til að klífa K2 að vetri.

Tilraunin fór ekki eins og áætlað var. Menn úr hópnum veiktust, slösuðust eða hættu við og að lokum voru of fáir eftir til að halda áfram. Hópurinn komst í um 6.500 til 6.600 metra hæð.

Hann ætlaði sér að klára þetta. Verkefninu var bara ólokið.

Enginn dró getu hans í efa

John Snorri sneri aftur til Pakistan í nóvember 2020. Með honum voru pakistanski fjallgöngumaðurinn Ali Sadpara, sonur hans Sajid Sadpara og Sílemaðurinn Juan Pablo Mohr. Ali var einn þekktasti fjallgöngumaður Pakistans. 

Í þættinum er lögð áhersla á að mennirnir hafi verið samherjar með sameiginlegt markmið en ekki þannig að Pakistanarnir væru aðeins burðarmenn Johns Snorra.

John Snorri hafði unnið að undirbúningnum frá því um vorið. Ekkert mátti vanta, enda gat eitt stykki af gleymdum eða biluðum búnaði bundið enda á leiðangurinn.

„Ég er ekki sérfræðingur í þessu, en það sem ég heyrði þegar ég ræddi við fólk sem hafði innsýn í þetta, bæði hér og erlendis, var að enginn dró það í efa að hann gæti þetta. Enginn hafði gert þetta áður og það var auðvitað ekki auðvelt. 

En ef einhver gæti hugsanlega gert það, þá var hann einn af þeim. Efasemdirnar náðu ekki lengra en það.

Fyrstu vikurnar fóru í að leggja línur, koma upp búðum og aðlagast hæðinni. Á sama tíma varð ljóst að fleiri hópar ætluðu sér sama sögulega afrek.

Varð ekki fyrstur

Opinberlega var því hafnað að bein keppni væri á milli hópanna. Hver þeirra fylgdi eigin áætlun og beið eftir sínum veðurglugga. Eftir sem áður vildi aðeins einn verða fyrstur.

Í lok desember komust John Snorri, Ali og Sajid í aðrar búðir í um 6.600 metra hæð. John Snorri lýsti ferðinni sem mjög erfiðri. Mikið grjóthrun var á leiðinni, broddar á öðrum fæti hans losnuðu og hitinn var um þrjátíu gráður undir frostmarki.

Þann 16. janúar 2021 náði hópur nepalskra fjallgöngumanna tindinum. Þar með varð ljóst að John Snorri yrði ekki fyrstur.

Sama dag lést spænski fjallgöngumaðurinn Sergi Mingote eftir að hafa runnið hundruð metra niður fjallið. Skömmu síðar fannst Bandaríkjamaðurinn Alex Goldfarb látinn.

John Snorri og félagar héldu áfram að bíða eftir réttu aðstæðunum. Veðrið var óstöðugt og fyrri tindatilraun þeirra fór út um þúfur.

Lokaferðin upp fjallið

Seint að kvöldi 4. febrúar 2021 var tilkynnt að John Snorri og félagar hans væru lagðir af stað á tindinn.

Þeir höfðu komið í þriðju búðir fyrr um daginn en lítið náð að hvílast. Þrír aðrir fjallgöngumenn leituðu skjóls í tjaldi þeirra og voru því sex saman í litlu tjaldi.

Á leiðinni bilaði súrefnisbúnaður Sajids. Hann neyddist til að snúa við en sá John Snorra, föður sinn Ali og Juan Pablo síðast við flöskuhálsinn um klukkan fimm að morgni 5. febrúar.

Mennirnir voru þá í um 8.200 metra hæð, aðeins um 400 metrum frá tindinum. Eftir það heyrðist ekkert frá þeim.

Í Eftirmálum er Einar spurður hvort vonbrigðin yfir því að nepalski hópurinn hafi orðið fyrstur kunni að hafa ýtt John Snorra af stað við of hættulegar aðstæður.

„Hann hafði metið það þannig að það væri of hættulegt þegar hinir fóru, annars hefði hann farið þá. Þess vegna var ég viss um að þegar hann lét til skarar skríða væri hann með skýra mynd af því að nú væri í lagi að fara. Hann hafði verið kaldur og ákveðið að fara ekki þegar hinir fóru. 

Ég held ekki að hvatinn til þess að verða annar hafi verið svo mikill að hann hafi misst hausinn. Ég held að hann hefði frekar farið niður en að taka meiri áhættu en hinir.

Beðið eftir sambandi

Þegar leið á 5. febrúar án þess að nokkuð heyrðist birti Lína upplýsingar á samfélagsmiðlum. Hún benti á að mennirnir þyrftu að einbeita sér að göngunni og að rafhlöður entust illa í kuldanum.

Klukkustundirnar liðu án frétta. Mennirnir voru lýstir týndir og pakistanski herinn hóf umfangsmikla leit með þyrlum. Bæði John Snorri og Juan Pablo voru með gervihnattasíma en ekki tókst að staðsetja þá. Þyrlurnar komust ekki alla leið upp í þá hæð þar sem mennirnir sáust síðast. Ský, myrkur og gífurlegur kuldi torvelduðu leitina.

„Þegar ekkert hafði spurst til þeirra í þrjá eða fjóra sólarhringa voru líkurnar á að þeir væru á lífi orðnar mjög litlar. Þá fór maður að átta sig á því að John Snorri kæmi ekki aftur. Fram að því vonaðist maður auðvitað eftir einhverju kraftaverki en á ákveðnum tímapunkti var ekki hægt að sjá að þetta gæti endað öðruvísi.“

Gagnrýnin hófst

Á meðan fjölskylda og vinir vonuðust eftir fréttum fór af stað hörð umræða um leiðangurinn. 

Fólk spurði hvers vegna sex barna faðir hefði lagt sig í slíka hættu og gagnrýndi kostnaðinn við leitina.

„Þegar það var orðið nokkuð augljóst að hann væri látinn þá byrjaði gagnrýnin. Fólk spurði af hverju menn væru að gera þetta og talaði um að það væri dýrt að fara upp að bjarga honum, eins og þetta hefði verið gert í hugsunarleysi. Það var slitið úr öllu samhengi og gagnrýnin mjög ómálefnaleg. Þetta var ekki einhver miðaldurskrísa þar sem nokkrir strákar ákváðu að gera eitthvað geggjað. Hann var búinn að æfa þetta og fara aftur og aftur í þessar aðstæður.“

Einar bendir á að tryggingar og greiðslur vegna mögulegra björgunaraðgerða hafi verið hluti af fjárhagsáætluninni. Áhættan hafi verið gríðarleg.

„Hann vissi alveg að eitt lítið „feil“ gat orðið niðurstaðan. Í öllum þessum verkefnum þarf bara eitthvað örlítið út af að bregða og þá ertu dáinn. Hann var að fara í erfiðustu aðstæðurnar af öllum, á erfiðasta fjallið að hávetri. Það eiga margir erfitt með að skilja af hverju einhver setur sig í þær aðstæður. En þegar þú færð tækifæri til að gera eitthvað sem virðist ómennskt og skrifa þig á spjöld sögunnar er þetta gjaldið sem menn greiða ef það mistekst.“

Lýstir látnir

Þann 8. febrúar sagði fjölskylda Johns Snorra vonina um að mennirnir fyndust á lífi orðna mjög litla. Leitinni var haldið áfram en án árangurs.

Þann 18. febrúar, þrettán dögum eftir að síðast sást til þeirra, lýstu pakistönsk stjórnvöld John Snorra, Ali og Juan Pablo látna.

Fjölskylda Johns Snorra taldi að mennirnir hefðu náð tindinum en lent í vandræðum á niðurleiðinni. Sú niðurstaða byggðist meðal annars á staðsetningu þeirra þegar Sajid sá þá síðast og tímasetningu merkja frá síma Johns Snorra.

Einar segir að margir sem gagnrýndu ákvörðunina hafi engann veginn getað sett sig í  spor Johns Snorra.

„Margir spurðu hvað maðurinn væri eiginlega að pæla og sögðu: „Ég myndi aldrei gera þetta. En þú getur þetta hvort sem er ekki. Þú átt ekki möguleika á Íslandsmeti eða því að verða fyrstur til að gera eitthvað af þessu tagi. Þú getur ekki sett þig í þessi spor. Þú átt í raun ekkert erindi í það samtal.“

Lína með í ákvörðununum

Einar leggur áherslu á að Lína hafi þekkt áhættuna sem fylgdi leiðangrinum. John Snorri hafi hvorki haldið upplýsingum frá henni né tekið ákvörðunina einn.

„Þegar við vorum að funda um þetta komu þau saman. Hann var ekki að fela áhættuna fyrir henni; það hefði verið galið. Í hvert skipti sem við settumst niður og fórum yfir verkefnið var hún með honum. Hún þekkti manninn sinn og vissi hvað hann gat. Ef hún hefði ekki viljað að hann færi hefði hann örugglega ekki farið.“

Lína hafði sjálf reynslu af fjallamennsku og sagði síðar að þau hjónin hefðu verið samstiga um að skapa líf sem væri þess virði að lifa. John Snorri hefði haft fullan stuðning hennar við að elta drauminn um K2.

Fundust fimm mánuðum síðar

Í lok júní 2021 sneri Sajid aftur á K2 til að leita að föður sínum og samferðamönnum hans. Í lok júlí fundust lík mannanna í rúmlega átta þúsund metra hæð, skammt frá flöskuhálsinum.

Staðsetning þeirra og búnaður þóttu benda til þess að þeir hefðu verið á leið niður. Úkraínski fjallgöngumaðurinn Valentin Sipavin lýsti því síðar að John Snorri hefði hangið hnipraður í reipi og verið vettlingalaus á vinstri hendi.

Ein kenningin er sú að reipafesting hafi brotnað og John Snorri lent í sjálfheldu. Til að losa sig hefði hann þurft að klifra nokkra metra án líflínu, mögulega í myrkri og orðið örmagna.

Ekki hefur verið staðfest hvað gerðist eða hvort mennirnir náðu tindinum.

„Í mínum huga varð hann fyrir slysi. Þetta var eitthvað sem gerðist utan hans yfirráða,“ segir Einar.

Greiddu dýrasta verðið

Lík Ali og Juan Pablo voru síðar færð og grafin saman. Jarðneskar leifar Johns Snorra voru hins vegar á erfiðari stað og of hátt uppi til að þyrla gæti sótt þær.

Sumarið 2022 fór Lína ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum til Pakistans. Heitasta ósk fjölskyldunnar var að koma John Snorra heim og jarðsetja hann á Íslandi.

Pakistanskir fjallgöngumenn reyndu að færa líkið en urðu frá að hverfa vegna snjóflóðahættu. Fjölskyldan lagði áherslu á að hún vildi ekki stofna lífi annarra í hættu.

„Ef þau hjónin og þeirra umhverfi höfðu metið þetta sem raunhæfan möguleika var það þeirra að ákveða það. Þetta var þeirra líf og þeirra mat. Fólk utan frá getur ekki sett sig að fullu í þeirra spor. En þau greiddu dýrasta verðið fyrir ákvörðunina.“

Hefði verið stórkostlegt afrek

Jarðneskar leifar Johns Snorra eru enn á sama stað á K2. Spurningunni um hvort hann, Ali og Juan Pablo hafi náð tindinum verður mögulega aldrei svarað.

Einar bendir á að viðbrögð samfélagsins hefðu orðið allt önnur ef John Snorri hefði skilað sér niður.

„Hefði hann komist á toppinn og niður aftur hefði þetta bara verið stórkostlegt afrek. Enginn hefði talað um ábyrgðarleysi með sama hætti. Hvort hann hefði þá stoppað og farið á fyrirlestravagninn eða haldið áfram fáum við aldrei að vita. Við fáum aldrei að vita hvaða leið hann hefði valið.“

Eftir standa spurningarnar sem fjölskylda, vinir og fjallamenn hafa velt fyrir sér frá árinu 2021. Náðu mennirnir tindinum? Kom þeim á óvart óveður, brotin reipafesting eða annað slys? Voru þeir orðnir of örmagna til að komast áfram?

Engin ein skýring hefur verið staðfest.

„Mér finnst mikilvægt að halda minningu Johns Snorra á lofti, bæði vegna afrekanna sem honum tókst að vinna og vegna þess að hann var einstakur karakter,“ segir Einar jafnframt.

„Það er eiginlega ekki hægt að lýsa hugarfarinu og orkunni sem fylgdi honum. Ég efaðist aldrei um andlega eða líkamlega getu hans. Alveg fram á síðustu sólarhringana var ég viss um að hann tæki réttar ákvarðanir. Ég var viss um að hann myndi ná þessu.“

#gagnrýni #john #slitin #ómálefnaleg #öllu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262912476d/gagn-ryni-a-john-o-mal-efna-leg-og-slitin-ur-ollu-sam-hengi

📰 Aðrar fréttir

Stöðvaður fyrir of hraðan akstur en reyndist vera eftir­lýstur - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Stöðvaður fyrir of hraðan akstur en reyndist vera eftir­lýstur - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í morgun en listinn er í lengri kantinum eftir nóttina....
Varað við hviðum á Austur­landi en blíðu í höfuð­borginni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Varað við hviðum á Austur­landi en blíðu í höfuð­borginni - Vísir
Kemur þetta fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar en þar greinir einnig frá því að á Suðausturlandi og Austfjörðum í dag megi búast við enn...
Gefur út ljóðabók til að fjármagna nám í Danmörku
📅 25.07.2026 👁️ 0
Gefur út ljóðabók til að fjármagna nám í Danmörku
Birgitta Ósk er 23 ára Eyrbekkingur, fædd og uppalin á staðnum. Birgitta var að gefa út sína fyrstu ljóðabók með ljóðum eftir sjálfa sig en bókin heit...
Sýrland rís úr rústum borgarastríðs
📅 25.07.2026 👁️ 0
Sýrland rís úr rústum borgarastríðs
Tvær sprengjur voru sprengdar í Damaskus á meðan Macron Frakklandsforseti var þar í heimsókn 7. júlí , fyrstur evrópskra leiðtoga frá því að uppreisna...
Óttar Guðmundsson skrifar: Frammistöðukvíði
📅 25.07.2026 👁️ 1
Óttar Guðmundsson skrifar: Frammistöðukvíði
Mynd Snemma árs 1826 varði Þorleifur nokkur Guðmundsson Repp
Gagn­rýni á John Snorra ómálefna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Gagn­rýni á John Snorra ómálefna­leg og slitin úr öllu sam­hengi - Vísir
Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða ...
Hamas grunað um að hafa byggt upp umfangsmikið hryðjuverkanet í Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 0
Hamas grunað um að hafa byggt upp umfangsmikið hryðjuverkanet í Evrópu
Hryðjuverkasamtökin Hamas eru grunuð um að hafa byggt upp umfangsmikið aðgerða- og vopnanet í Evrópu sem átti að geta gert árásir á gyðinga, Ísraela o...
Er gervigreindin orðin of öflug?
📅 25.07.2026 👁️ 0
Er gervigreindin orðin of öflug?
Er gervigreindin orðin of öflug? Nýj­asta út­gáfa Chat­G­PT varð stjórn­laus í til­raun­um og réðst á vef­síðu. Áhyggj­ur hafa vakn­að um að erfitt ve...
Fleygðu manni fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss
📅 25.07.2026 👁️ 0
Fleygðu manni fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöld eða nótt tilkynning um líkamsárás þar sem einum var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss...
Frétta­tía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Frétta­tía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Sem fyrr er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttatían ...
Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg
Upp úr klukkan fimm í morgun hófst jarðskjálftahrina um 60 kílómetrum suðvestur af Eldey. Nokkrir skjálftar um og yfir 3 að stærð hafa mælst í hrinunn...
Tenerife steps back in time to re-enact Nelson's British Invasion of 1797
📅 25.07.2026 👁️ 0
Tenerife steps back in time to re-enact Nelson's British Invasion of 1797
Hundreds of people gathered in the Barranco de Santos in Santa Cruz de Tenerife last night (Friday) as the city travelled back 229 years to relive one...
Tilraunaflug SpaceX heppnaðist vel
📅 25.07.2026 👁️ 1
Tilraunaflug SpaceX heppnaðist vel
Tilraunaflug Starship-risaeldflaugar geimferðafyrirtækisins Space X í gærkvöld heppnaðist vel.Flaugin tók á loft frá Texas skömmu fyrir klukkan 23 að ...
Gangs, violence and dumped dead animals: The hidden world of illegal hare hunts
📅 25.07.2026 👁️ 1
Gangs, violence and dumped dead animals: The hidden world of illegal hare hunts
Farmers talk of attacks as police receive nearly 9,000 reports of banned hare coursing, the BBC finds.
SATURDAY WEATHER: Temperatures set to drop across the Canaries as strong trade winds continue
📅 25.07.2026 👁️ 1
SATURDAY WEATHER: Temperatures set to drop across the Canaries as strong trade winds continue
Temperatures will ease slightly across the Canary Islands today, Saturday, bringing some relief after recent hot weather, although strong trade winds ...
Trump pokes fun at press during White House Correspondents' Dinner
📅 25.07.2026 👁️ 1
Trump pokes fun at press during White House Correspondents' Dinner
The event celebrated press freedom after the first dinner was cancelled by a shooting in April.
Trump takes swipes at press during White House Correspondents' Dinner
📅 25.07.2026 👁️ 1
Trump takes swipes at press during White House Correspondents' Dinner
The event celebrated press freedom after the first dinner was cancelled by a shooting in April.
Fögnuðu fjögurra ára afmæli tveggja risapanda
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fögnuðu fjögurra ára afmæli tveggja risapanda
Dýragarðurinn í Chongqing í suðvesturhluta Kína hélt einkar krúttlega afmælisveislu á miðvikudag. Hún var haldin í tilefni af fjögurra ára afmæli risa...
Versti mislingafaraldur í Bandaríkjunum í 35 ár
📅 25.07.2026 👁️ 1
Versti mislingafaraldur í Bandaríkjunum í 35 ár
Rúmlega 2.300 tilfelli mislinga hafa verið greind í Bandaríkjunum það sem af er ári. Tilfellin eru nú þegar orðin fleiri en allt árið í fyrra. Þrír lé...
Gular viðvaranir á Suðausturlandi og Austfjörðum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Gular viðvaranir á Suðausturlandi og Austfjörðum
Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Suðausturlandi og Austfjörðum vegna norðvestan hvassviðris. Spáð er 13 til 20 metrum á sekúndu í la...
Trump orders Smithsonian to post warnings about 'inaccurate' US history
📅 25.07.2026 👁️ 1
Trump orders Smithsonian to post warnings about 'inaccurate' US history
The Trump administration has often accused the world's largest research museum of harbouring an anti-American bias.
Bandaríkin réðust á olíuflutningaskip í Ómanflóa
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bandaríkin réðust á olíuflutningaskip í Ómanflóa
Bandaríkjaher stöðvaði för olíuflutningaskips í Ómanflóa í kvöld með því að skjóta á það. Herinn sakar áhöfn skipsins um að hafa ætlað að fara á svig ...
Luton stabbing: Police launch murder investigation after teenager dies
📅 25.07.2026 👁️ 1
Luton stabbing: Police launch murder investigation after teenager dies
The 17-year-old was taken to hospital with multiple stab wounds but was pronounced dead shortly after, Bedfordshire Police says.
Khan rekinn úr embætti aðalsaksóknara
📅 25.07.2026 👁️ 1
Khan rekinn úr embætti aðalsaksóknara
Aðildarríki Alþjóðlega sakamáladómstólsins, ICC, viku Karim Khan úr embætti aðalsaksóknara dómstólsins í dag. Fulltrúar 82 ríkja af 125 greiddu atkvæð...
Ekkert lát á á­rásum Banda­ríkjanna og Íran - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ekkert lát á á­rásum Banda­ríkjanna og Íran - Vísir
Tim Hawkins, talsmaður yfirstjórnar Bandaríkjahers (CENTCOM), sagði í samtali við AP að skipið M/T Lavine hefði reynt að rjúfa hafnarbann minnst fjóru...
Sádi-Arabar réðust á yfirráðasvæði Húta í Jemen
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sádi-Arabar réðust á yfirráðasvæði Húta í Jemen
Hernaðarbandalag Sádi-Araba gerði árásir á yfirráðasvæði Húta í Jemen í kvöld.Bandalagið segir árásirnar svar við árásum Húta á skip í Rauðahafi.Hútar...
Teen who singer D4vd is accused of killing had multiple abortions, texts reveal
📅 25.07.2026 👁️ 1
Teen who singer D4vd is accused of killing had multiple abortions, texts reveal
Prosecutors allege D4vd started abusing the girl when she was 13 and she had threatened to expose him.
Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum - Vísir
„Ferðir, gisting, þátttökugjöld, búnaður, matur, frí úr vinnu og ótal klukkutímar í akstri og skipulagningu. Fyrir margar fjölskyldur nemur þessi kost...
Long overdue, life-changing or frivolous? Your thoughts on wedding rule changes
📅 24.07.2026 👁️ 0
Long overdue, life-changing or frivolous? Your thoughts on wedding rule changes
The government wants to relax wedding laws so couples can get married almost anywhere.
Five ways to make the most of the summer holidays with kids
📅 24.07.2026 👁️ 0
Five ways to make the most of the summer holidays with kids
The best tips and tricks to have a fun - yet affordable - summer break with the family.
Who could be the next Graham Norton, and does the BBC even need one?
📅 24.07.2026 👁️ 0
Who could be the next Graham Norton, and does the BBC even need one?
Many considered Claudia Winkleman as Norton's successor, but her chat show ended after just one series.
ADHD has rewired the workplace - these are the consequences
📅 24.07.2026 👁️ 0
ADHD has rewired the workplace - these are the consequences
As ADHD diagnoses have risen, have workplaces caught up with the needs of the workforce?
Varasamur vindur á Suðaustur- og Austurlandi
📅 24.07.2026 👁️ 1
Varasamur vindur á Suðaustur- og Austurlandi
Það gengur í ákveðna norðvestanátt seint í kvöld og nótt á Suðaustur- og Austurlandi. Í athugasemd veðurfræðings Vegagerðarinnar segir að vindhviður g...
Warning shot or publicity stunt - how worried should we be about the OpenAI hack?
📅 24.07.2026 👁️ 1
Warning shot or publicity stunt - how worried should we be about the OpenAI hack?
Hugging Face said the hack was done at superhuman speed by an AI with little or no human guidance.
Tintwistle Moor fire burning one month on is 'the size of a small town'
📅 24.07.2026 👁️ 1
Tintwistle Moor fire burning one month on is 'the size of a small town'
More than a month on, and firefighting shows no sign of immediate end at Tintwistle Moor.
'The dogs were getting upset': How LA band Muna survived their worst ever gig
📅 24.07.2026 👁️ 0
'The dogs were getting upset': How LA band Muna survived their worst ever gig
The group discuss disastrous gigs, putting political action into music and the meaning of "queer pop".
Ukraine's Zelensky struggles to fix crisis over removal of defence minister Fedorov
📅 24.07.2026 👁️ 1
Ukraine's Zelensky struggles to fix crisis over removal of defence minister Fedorov
Protests have continued over Zelensky's decision to dismiss Mykhailo Fedorov, and some commentators believe he has been damaged politically.
Watch: Couple tell of attempt to save drowning girl and mum
📅 24.07.2026 👁️ 1
Watch: Couple tell of attempt to save drowning girl and mum
A couple have told the BBC how they attempted to save a mother and daughter who drowned off an Essex beach.
Neyðarástandi lýst yfir vegna skógarelda
📅 24.07.2026 👁️ 1
Neyðarástandi lýst yfir vegna skógarelda
Það var bíll við bíl á leiðinni frá Cap Ferret-nesinu á vesturströnd Frakklands í dag. Það var búið að skipa heimamönnum og ferðafólki að yfirgefa svæ...
Skynet langt undan en ís­lensk stjórn­völd þurfa að vera undir­búin - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Skynet langt undan en ís­lensk stjórn­völd þurfa að vera undir­búin - Vísir
Greint var frá því í vikunni að nýtt gervigreindarlíkan bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefði framkvæmt netárás gegn sprotafyrirtæki eftir að starfsme...
Mánuður frá mestu hamförum í sögu Venesúela
📅 24.07.2026 👁️ 1
Mánuður frá mestu hamförum í sögu Venesúela
Einn mánuður er liðinn frá einum mestu hamförum í sögu Venesúela.Þann 24. júní urðu tveir jarðskjálftar með skömmu millibili sem urðu til þess að hund...
Útfararstjóri handtekinn – Þóttist vera ekkja og stal miklum verðmætum úr dánarbúi
📅 24.07.2026 👁️ 1
Útfararstjóri handtekinn – Þóttist vera ekkja og stal miklum verðmætum úr dánarbúi
Útfararstjóri, kona í Texas fylki, hefur verið handtekin eftir að upp komst að hún hafði falsað erfðaskrá látins manns. Þóttist hún verja ekkja mannsi...
Minnst 15 látnir í á­rásum Rússa - Vísir
📅 24.07.2026 👁️ 1
Minnst 15 látnir í á­rásum Rússa - Vísir
Árásin hæfði heræfingarsvæði í Bucha-héraði, um 20-30 kílómetrum frá miðborg Kærugarðs. 27 heimili eru sögð hafa eyðilagst í árásinni. Volodimír Selen...
Commonwealth Games 2026: Gabriel Langton injury overshadows gymnastics silver
📅 24.07.2026 👁️ 1
Commonwealth Games 2026: Gabriel Langton injury overshadows gymnastics silver
A horror fall from England gymnast Gabriel Langton overshadows his team's silver medal in the team event on the opening night of action at Glasgow 202...
Watch: Moment of explosion as huge fire breaks out at Essex industrial site
📅 24.07.2026 👁️ 1
Watch: Moment of explosion as huge fire breaks out at Essex industrial site
More than 100 firefighters were sent to tackle a huge fire at industrial units on a farm on Friday.
Firefighters battle Madrid blaze, as thousands evacuated in France and Spain
📅 24.07.2026 👁️ 1
Firefighters battle Madrid blaze, as thousands evacuated in France and Spain
Authorities face the "worst fire in the history of the region", Madrid officials say, as French firefighters battle a blaze heading towards Bordeaux.
More than 220,000 evacuated in France and Spain due to wildfires
📅 24.07.2026 👁️ 1
More than 220,000 evacuated in France and Spain due to wildfires
French firefighters battle a blaze heading towards Bordeaux while officials in Madrid say they face the "worst fire in the history of the region".
Vænta þúsunda á sólmyrkvahátíð
📅 24.07.2026 👁️ 1
Vænta þúsunda á sólmyrkvahátíð
Hellissandur er á öðrum endanum við að undirbúa Almyrkvahátíðina, eða Eclipse Festival, sem verður haldin dagana 11.-15. ágúst. Bandaríska fyrirtækið ...
Ísland ætti að fylgja í fótspor Finna og Svía en setja mun ítarlegri kröfur
📅 24.07.2026 👁️ 1
Ísland ætti að fylgja í fótspor Finna og Svía en setja mun ítarlegri kröfur
Íslendingar eiga að setja fram kröfur um sérstakt stuðningskerfi fyrir norðurslóðalandbúnað ef farið verður í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ísl...
Smáhýsið gjöreyðilagðist í eldsvoðanum
📅 24.07.2026 👁️ 1
Smáhýsið gjöreyðilagðist í eldsvoðanum
Eldur kviknaði í smáhýsi í eigu Reykjavíkurborgar á Fiskislóð í gærkvöld. Hýsið var mannlaust. Að sögn Stefáns Más Kristinssonar, varðstjóra hjá Slökk...