Í tilkynningu frá samtökunum er staðhæft að eigur áhafnarmeðlima hafi verið haldlagðar án þess að fyrir því væri heimild. Haldið hafi verið fram af lögreglumönnum að þeir hefðu sérstaka heimild en aldrei hafi verið sýnt fram á slíkt. Þá hafi áhöfninni ekki verið birtur listi yfir allar þær eigur sem gerðar hafi verið upptækar.
Gagnrýnt er að skipverjar hafi ekki fengið sjálfir að velja sér lögmann og komið hafi verið í veg fyrir að lögmaður þeirra næði sambandi við þá. Sömuleiðis hafi þeir ekki fengið að setja sig í samband við fjölskyldur sínar.
Einnig er í tilkynningunni gagnrýnt að á skipinu skorti aðgengi að grunnaðstöðu, líkt og sturtu. Áhöfnin hafði fyrir handtöku búið sjálfviljug á Bandero vikum saman.
Ekkert hefur komið fram opinberlega um hvernig grunnþörfum áhafnarinnar er mætt meðan á haldi hennar stendur, svo sem með tilliti til baðherbergisaðstöðu og matar. Staðfest hefur verið af lögreglu að áhöfnin verði í haldi á skipinu fram yfir verslunarmannahelgi hið minnsta.
Samtökin birtu fyrr í dag myndbandsupptöku af því þegar sérsveitin réðst inn í skipstjórnarklefann:
Samtökin kalla í yfirlýsingu sinni eftir því að skipverjar fái hið snarasta aðgang að lögmanni og að komið verði á samskiptum milli skipverja og fjölskyldna þeirra. Einnig er krafist fulls gagnsæis varðandi þær aðstæður sem áhöfninni er haldið við og skýrra skilaboða frá stjórnvöldum hérlendis varðandi lagalegan grundvöll þess að skipverjum sé enn haldið föngnum þrátt fyrir að sólarhringsfrestur lögreglunnar til að fara fram á gæsluvarðhald hafi runnið út.