Skipið fylgdist í síðustu viku með æfingu Atlantshafsbandalagsins á Norður-Atlantshafi. Skipið siglir utan tólf sjómílna landhelgi landsins en innan tvö hundruð sjómílna efnahagslögsögunnar milli Íslands og Grænlands.
Fylgst er með skipinu frá stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Í gær fór þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í eftirlitsflug út að skipinu og tók ljósmyndina sem fylgir þessari frétt.
Rússnesk herskip af þessu tagi fylgjast með æfingum og aðgerðum Atlantshafsbandalagsins og sigla reglulega inn í efnahagslögsögu bandalagsríkja, en nýverið var greint frá veru skipsins sem um ræðir undan ströndum Noregs.
Áfram verður fylgst náið með ferðum skipsins.