Tuttugu og eins árs gamall Frakki hefur verið ákærður fyrir gáleysislegan akstur í Ástralíu eftir að hafa ekið jeppa á gosbrunn og valdið tjóni sem metið er á 15.000 ástralska dali (um 1,3 milljónir íslenskra króna).
Lögreglan sagðist hafa fundið manninn enn undir stýri að gæða sér á skyndibita þegar hún kom á vettvang í Hyde Park í miðborg Sydney snemma á miðvikudagsmorgun.
Helmingur jeppans enn í brunninum
„Helmingurinn af jeppanum var inni í gosbrunninum og helmingurinn stóð út úr, með ökumanninn ennþá inni í bílnum,“ sagði lögreglufulltrúinn Anderson Lessing við útvarpsstöðina 702 ABC Sydney eftir slysið.
„Furðulegt nokk, þá var hann enn að borða hamborga þarna.“
Ökumaðurinn, sem sakaði ekki, hélt því fram að hann hefði verið að afhenda matarpöntun þegar óhappið varð.