G7-ríkin ætla að auka þrýsting á Rússa að hverfa frá stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Þetta á meðal annars að gera með viðskiptaþvingunum á olíu og gas að því er ónafngreindur franskur embættismaður sagði við AFP-fréttastofuna.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu tók þátt í fundinum í dag og hitti þar meðal annars Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Leiðtogarnir komust einnig að þeirri niðurstöðu að staðan á vígvellinum sé hagfelld Úkraínu. Zelensky hafði reyndar sjálfur bent í því samhengi á árásir á olíuhreinsistöðvar í Moskvu-héraði en slíkar árásir hafa meðal annars leitt til þess að olíufélag hefur þurft að skammta olíu.
Trump segir að Rússar eigi að semja
Zelensky sagði á samfélagsmiðlum eftir að hafa hitt leiðtogana að forgangsatriði Úkraínumanna væru skýr. Meðal þeirra væri að fá fleiri loftvarnarflaugar, sérstakan stuðningspakka fyrir veturinn og að auka þrýstinginn á Rússa. Hann fagnaði því jafnframt að allir hefðu skilning á að Rússar væru ekki að vinna þetta stríð og að neyða yrði Pútín Rússlandsforseta til að ljúka því.
Donald Trump sagði sjálfur í dag að Rússar ættu að semja og benti í því samhengi á mikið mannfall beggja vegna. Mannfallið er það mesta frá síðari heimsstyrjöld og stríðið hefur staðið lengur en fyrri heimsstyrjöldin. Evrópskir leiðtogar hafa hvatt Trump til að koma á samningafundi milli Zelenskys og Pútíns.
Trump sagði einnig að nú þegar olían væri aftur farin að flæða um Hormússund eftir samninginn við Íran væri hægt að setja viðskiptaþvinganir á rússneska olíu. Bæði Bretar og Kanadamenn hafa boðað nýjar viðskiptaþvinganir.