Fyrsta messa Trans kirkjunnar, hýr hús­lestur og sirkusatriði - Vísir

Fyrsta messa Trans kirkjunnar, hýr hús­lestur og sirkusatriði - Vísir

Fyrsta messa Trans kirkjunnar, hýr hús­lestur og sirkusatriði - Vísir

Undirbúningurinn hefur gengið ótrúlega vel í ár að sögn Ingu Auðbjargar Straumland, listræns stjórnanda opnunarhátíðar Hinsegin daga, en hópur sjálfboðaliða hefur tekið höndum saman og skipulagt hátt í hundrað viðburði.

„Það er hinsegin fólk sem að setur þetta sjónarspil og þennan kraft og dýpt í þessa hátíð sem að innifelur náttúrulega ýmsa viðburði,“ segir hún í samtali við blaðamann Vísis en hápunktur vikunnar er svo Gleðigangan sem fer fram á laugardaginn, þann 8. ágúst.

Snúið vörn í sókn

Opnunarhóf verður haldið í Sjálfstæðissalnum, gamla NASA, á Parliament Hotel á Austurvelli í kvöld, þriðjudaginn 4. ágúst, en þar verður svokallað sirkúsþema.

Opnunarhátíðin er klukkan átta í kvöld á Parliament Hotel en meðal þeirra sem fram koma eru tónlistarmaðurinn Álfgrímur.Aðsend/Sunna Ben

„Sirkusinn hefur hérna einhvern veginn frá örófi alda samanstaðið af fólki sem er hæðst að og gert grín að af því að það er öðruvísi en í staðinn fyrir að fara í felur hafa þeir nýtt sér sérstöðu sína og búið til sjónarspil og töfra úr því,“ segir Inga en því þótti þemað viðeigandi fyrir viðburðinn.

„Okkur finnst sirkusinn og hinsegin samfélagið, sem er náttúrulega nátengt, eiga margt sameiginlegt. Við ætlum að vera með loftfimleika- og sirkusatriði og geggjaða stemningu yfir þessu öllu saman.“

Það sé svo einstakt við sirkusinn að þar geri fólk hluti sem séu hættulegir og áhorfendur standi á öndinni opinmynntir yfir því að fólk skuli þora að vera þau sjálf.

Skeina sér í hinsegin fánann

En Inga segist hafa tekið, líkt og margir, eftir ákveðnu bakslagi í samfélaginu. Nýskeður atburður í Berlín sé dæmi um það.

„Þar var hinsegin fólk að koma saman í mestu makindum og var ekki fyrir neinum og það var ráðist að því. En við hættum ekki við að koma saman þrátt fyrir það,“ segir Inga og ítrekar „við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn.“

Þá tekur hún undir með skipuleggjendum Druslugöngunnar sem sögðu frá því fyrr í sumar að hún fyndi sérstaklega fyrir mótbyr frá ungu fólki á Íslandi í dag. Hún segir orðið alltof algengt að fólk leyfi sér að hella sér yfir hinsegin fólk einfaldlega fyrir að vera til.

„Það er allt í einu orðið normalíserað að fara við hverja einustu mynd á samfélagsmiðlum af einhverjum bæjarfélögum að mála götur í regnbogafánalitum, að þá er alltaf komið bara fullt af ælukörlum og einhverjum hreyfimyndum af fólki að skeina sér í fánann.“

Ungt hinsegin fólk í fyrirrúmi í ár

Fyrir áratug, eða jafnvel fimm árum, hafi raunin verið allt önnur. Skipuleggjendur Hinsegin daga í ár hafa kappkostað að gera ungu kynslóðinni hátt undir höfði en hinn átján ára gamli Guðjón Þorgils Kristjánsson flytur lag Hinsegin daga í ár.

Lagið „Fram á við“ er komið á allar helstu streymisveitur og er áminning til þeirra sem hafa ratað af réttri braut um að aldrei sé of seint að snúa við og láta hjartað ráða för. Hann samdi það ásamt Axel Inga Árnasyni og Ingu Auðbjörgu K. Straumland.

„Hann er bara átján ára og gaman að fá innsýn inn í hans hugarheim og náttúrulega bara óviðjafnanlegt að fá að njóta hans sviðshjarma og látúnsbarka,“ segir Inga en einnig mun fimmtán ára gamall söngvari flytja lag á dögunum.

„Hann var að æfa sig í gær með hljómsveitinni og ég fór að skæla. Þannig að hérna, fólk verður bara að búa sig undir það,“ segir Inga en til að skapa mótvægi við ungu tónlistarmennina verður Kristín Ómarsdóttir ljóðskáld með ræðurnar en „hún var einu sinni ung“.

Slagorðið í ár er „Sameinumst undir regnboganum“ en Inga segist sjá fram á að þátttakan verði með besta móti. Á dagskránni séu nýir viðburðir í bland við aðra sem fólk gæti verið farið að kannast við svo sem húslesturinn.

„Þetta er svo skapandi samfélag,“ segir hún en viðburðir líkt og fyrsta messa Trans kirkjunnar á sunnudaginn, þann 9. ágúst, hefur vakið mikla athygli. 

„Já já, við erum óhrædd við að ögra. Ég meina Hinsegin dagar eru mótmæli og svo er fjölskylduhátíð í dagskránni, en fyrst og fremst erum við þarna mætt til þess að vera með andóf gegn ríkjandi normum.“

#fyrsta #hýr #kirkjunnar #messa #trans

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262916820d/fyrsta-messa-trans-kirkjunnar-hyr-huslestur-og-sirkusatridi

📰 Aðrar fréttir

„Veiddu“ grænmetissala með dróna - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 0
„Veiddu“ grænmetissala með dróna - Vísir
Lögreglan í Úkraínu birti í morgun myndband af árásinni. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær myndbandið var tekið en það sýnir sölumanninn reyna að ko...
Minnst einn skip­verji Bandero má fara frá borði - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 0
Minnst einn skip­verji Bandero má fara frá borði - Vísir
Þetta staðfestir Arnar Kormákur Friðriksson, réttargæslumaður eins skipverjanna um borð í Bandero, í samtali við Vísi. Hann kveðst ekki búa yfir upplý...
Margrét hugsi vegna leikfangabyssumálsins á Akureyri - „Slíkur málflutningur hefur ekki þann tilgang að auka öryggi landsmanna“
📅 04.08.2026 👁️ 0
Margrét hugsi vegna leikfangabyssumálsins á Akureyri - „Slíkur málflutningur hefur ekki þann tilgang að auka öryggi landsmanna“
Eins og fram hefur komið voru fimm ungir karlmenn handteknir um helgina á Akureyri fyrir að hafa beint skotvopnum að fólki sem reyndust vera leikfanga...
Viljum að fólk upplifi náttúruna og hafi gaman
📅 04.08.2026 👁️ 0
Viljum að fólk upplifi náttúruna og hafi gaman
Viljum að fólk upplifi náttúruna og hafi gaman Fjalla­vin­ir fagna 15 ára af­mæli í ár og verða með sér­staka af­mæl­is­ferð eft­ir versl­un­ar­manna­...
Hjálparstarfsmaður sem aðstoðaði flóttamenn í Grikklandi myrtur af hælisleitenda – faldi líkið í ferðatösku
📅 04.08.2026 👁️ 0
Hjálparstarfsmaður sem aðstoðaði flóttamenn í Grikklandi myrtur af hælisleitenda – faldi líkið í ferðatösku
Hjálparstarfsmaður sem aðstoðaði flóttamenn í Grikklandi myrtur af hælisleitenda – faldi líkið í ferðatösku Fréttin4. ágúst 2026Erlent, Hælisleitendur...
Lanzarote Hospital steps up battle against Diabetes and Obesity as cases rise
📅 04.08.2026 👁️ 0
Lanzarote Hospital steps up battle against Diabetes and Obesity as cases rise
The Doctor José Molina Orosa Hospital in Lanzarote has expanded its Endocrinology and Nutrition Department in response to a growing number of patients...
Að minnsta kosti einn skipverji Bandero frjáls ferða sinna
📅 04.08.2026 👁️ 0
Að minnsta kosti einn skipverji Bandero frjáls ferða sinna
Að minnsta kosti einn skipverji af Bandero, skipi Paul Watson samtakanna, er nú frjáls ferða sinna. Viðkomandi, sem er karlmaður og sinnir fjölmiðlast...
Ceuta: EU commends Spain's 'swift response' to migrant crisis
📅 04.08.2026 👁️ 0
Ceuta: EU commends Spain's 'swift response' to migrant crisis
About 70,000 of the 72,000 people who came to Ceuta illegally last week have been returned to Morocco, Spain says.
Hlutur lífeyrissjóða í kísilverinu á Bakka færður niður í núll krónur
📅 04.08.2026 👁️ 0
Hlutur lífeyrissjóða í kísilverinu á Bakka færður niður í núll krónur
Hlutur lífeyrissjóða í kísilverinu á Bakka færður niður í núll krónur Fé­lag sem held­ur ut­an um eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóða og Ís­lands­banka í kí...
Leiðangursskipum fækkar umtalsvert
📅 04.08.2026 👁️ 0
Leiðangursskipum fækkar umtalsvert
Komum minni skemmtiferðaskipa eða svokallaðra leiðangursskipa, sem stoppa aðallega í smærri höfnum víðs vegar um landið, hefur fækkað á þessu ári. Bók...
66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn
📅 04.08.2026 👁️ 1
66°Norður opnar nýja verslun í Kaupmannahöfn
66°Norður opnaði í dag nýja verslun á Store Regnegade þar sem verslunin Storm var áður til húsa. Storm þekkja margir Íslendingar en hún hefur skapað s...
Ætlar að endurskoða lífstíðardóma – Ekkja lögreglumannsins æf
📅 04.08.2026 👁️ 1
Ætlar að endurskoða lífstíðardóma – Ekkja lögreglumannsins æf
Mörg þúsund fangar í Bretlandi gætu fengið frelsi sitt á ný eftir að Andy Burnham forsætisráðherra tilkynnti um allsherjarendurskoðun á lífstíðardómum...
Foreldri fatlaðs barns neitað um frekari skattaafslátt - Eyddi háum fjárhæðum í að laga heimilið að þörfum barnsins
📅 04.08.2026 👁️ 0
Foreldri fatlaðs barns neitað um frekari skattaafslátt - Eyddi háum fjárhæðum í að laga heimilið að þörfum barnsins
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu foreldris fatlaðs barns sem fór fram á að verða veittur frekari frádráttur frá tekjuskatti en ríkisskattstjóri hafð...
Oil prices fall on hopes Strait of Hormuz could reopen
📅 04.08.2026 👁️ 0
Oil prices fall on hopes Strait of Hormuz could reopen
US Secretary of State Marco Rubio and Treasury Secretary Scott Bessent both announced talks had progressed to allow shipments to resume.
Samstaða með Spáni á ráðherrafundi um Schengen segir dómsmálaráðherra
📅 04.08.2026 👁️ 1
Samstaða með Spáni á ráðherrafundi um Schengen segir dómsmálaráðherra
„Það var mikilvægt að koma saman svona skömmu eftir að þessir atburðir áttu sér stað, og fara yfir staðreyndir málsins og hvað við getum lært af þessu...
„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 0
„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ - Vísir
Undirbúningurinn hefur gengið ótrúlega vel í ár að sögn Ingu Auðbjargar Straumland, listræns stjórnanda opnunarhátíðar Hinsegin daga, en hópur sjálfbo...
75 staðfest andlát á Ceuta
📅 04.08.2026 👁️ 1
75 staðfest andlát á Ceuta
75 flótta- og förumenn létust á leiðinni frá Marokkó til spænsku hólmlendunnar Ceuta á norðurodda Marokkó í síðustu viku. Sendinefnd spænsku ríkisstjó...
„Við erum svo­lítið strand“ - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
„Við erum svo­lítið strand“ - Vísir
„Við erum svolítið strand,“ segir Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Fyrir tæp...
Pawel og neitunarvaldið
📅 04.08.2026 👁️ 1
Pawel og neitunarvaldið
Pawel og neitunarvaldið Fréttin4. ágúst 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, InnlentLeave a Comment Samsett mynd: Pawel Bartozek og Ólafur Ragnar Grí...
Landsbankinn spáir hærri stýrivöxtum
📅 04.08.2026 👁️ 1
Landsbankinn spáir hærri stýrivöxtum
Greiningadeild Landsbankans telur að stýrivextir verði hækkaðir í mánuðinum. Næsta vaxtaákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabankans verður 19. ágúst. H...
Yfir 3.600 hafa greitt atkvæði utan kjörfundar
📅 04.08.2026 👁️ 1
Yfir 3.600 hafa greitt atkvæði utan kjörfundar
Alls hafa rúmlega 3.600 greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný....
Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur - Vísir
„Bolungarvíkurkaupstaður tók við veghaldi upp á Bolafjall núna í mars og var í framhaldinu unnin verkáætlun sem gerir ráð fyrir að bæta öryggi upp á B...
Hilton Grand Vacations opens two resorts in Costa Adeje
📅 04.08.2026 👁️ 1
Hilton Grand Vacations opens two resorts in Costa Adeje
Hilton Grand Vacations has officially launched its brand in Tenerife with the reopening of two renovated holiday resorts in Costa Adeje, adding 250 se...
Slökktu eld í jepp­lingi á „ör­skots­stund“ - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Slökktu eld í jepp­lingi á „ör­skots­stund“ - Vísir
Þetta segir Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá eldinum. Guðmundur segir að enginn hafi verið fluttu...
Ruglings­legar og mis­vísandi frá­sagnir um fjóra til fimm­tán á­rásar­menn - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Ruglings­legar og mis­vísandi frá­sagnir um fjóra til fimm­tán á­rásar­menn - Vísir
Þetta kemur fram í dómnum, sem fréttastofa hefur undir höndum, en greint var frá niðurstöðu hans í síðustu viku. Í honum kemur fram að ríkið muni þurf...
Andrés og Stefán Einar furða sig á því að vera sagðir hlutdrægir - „Það er auðvitað gríðarleg umræða og harkaleg“
📅 04.08.2026 👁️ 1
Andrés og Stefán Einar furða sig á því að vera sagðir hlutdrægir - „Það er auðvitað gríðarleg umræða og harkaleg“
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson blaðamenn á Morgunblaðinu ræddu vinnustað sinn í síðasta þætti Spursmála, sem sá síðarnefndi stýrir, á vef...
Þorgerður Katrín eyðileggur málstað ESB-sinna
📅 04.08.2026 👁️ 1
Þorgerður Katrín eyðileggur málstað ESB-sinna
Þorgerður Katrín eyðileggur málstað ESB-sinna Fréttin4. ágúst 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar...
Simmi Vill gekk á Sigga Storm: „Ertu að segja að ég hefði ekki átt að spá rigningu fyrir norðan?“
📅 04.08.2026 👁️ 1
Simmi Vill gekk á Sigga Storm: „Ertu að segja að ég hefði ekki átt að spá rigningu fyrir norðan?“
Veðurfræðingurinn Sigurður Ragnarsson, Siggi Stormur, segir að langtímaspá hans fyrir Norðausturland um verslunarmannahelgina standi, það sé ótækt að ...
Mass funeral in Gaza for 112 Palestinians killed in 2023 Israeli strike
📅 04.08.2026 👁️ 0
Mass funeral in Gaza for 112 Palestinians killed in 2023 Israeli strike
The bodies - belonging to members of two extended families - have only recently been recovered from under rubble in Gaza City.
Enginn liggur undir grun um innbrotin á búin þrjú
📅 04.08.2026 👁️ 1
Enginn liggur undir grun um innbrotin á búin þrjú
Lögregla hefur lítið í höndunum við rannsókn innbrotsins á Dalsbú í Mosfellsbæ þar sem þúsund minkum var sleppt úr búrum sínum aðfaranótt miðvikudags....
Regnbogafáninn og inngildandi framfarafáninn eru ekki sami fáninn – Hvers vegna ruglast fólk?
📅 04.08.2026 👁️ 1
Regnbogafáninn og inngildandi framfarafáninn eru ekki sami fáninn – Hvers vegna ruglast fólk?
Regnbogafáninn og svokallaður inngildandi framfarafáni eru gjarnan settir undir sama hatt í almennri umræðu. Þeir byggja á sömu sögu og eru báðir nota...
Segja Rússa stunda „drónaveiðar“ á fólki
📅 04.08.2026 👁️ 1
Segja Rússa stunda „drónaveiðar“ á fólki
Segja Rússa stunda „drónaveiðar“ á fólki „Svona veiða Rúss­ar al­menna borg­ara,“ seg­ir um­boðs­mað­ur mann­rétt­inda í Úkraínu. Mynd­band sýn­ir græ...
Eldur í bíl í Skeifunni
📅 04.08.2026 👁️ 1
Eldur í bíl í Skeifunni
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna elds í bíl í Skeifunni.Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu ...
Slökktu eld í bíl í Skeifunni
📅 04.08.2026 👁️ 1
Slökktu eld í bíl í Skeifunni
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um tuttugu mínútur yfir eitt í dag eftir að eldur kviknaði í bíl í Skeifunni.Guðmundur Hreinsson, varð...
Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ - Vísir
Var það bandaríski dægurmiðillinn People Magazine sem greindi fyrst frá því að talsmaður Grande hefði tilkynnt um helgina að söngkonan myndi „draga si...
Neita því að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk í Danmörku
📅 04.08.2026 👁️ 0
Neita því að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk í Danmörku
Þrír danskir drengir hafa verið handteknir fyrir tilraun til hryðjuverka. Þeir eru grunaðir um að hafa skipulagt árás á ungmenni í grunnskólanum Hadst...
Neytendastofa sektar bílastæðafyrirtæki fyrir brot
📅 04.08.2026 👁️ 1
Neytendastofa sektar bílastæðafyrirtæki fyrir brot
Neytendastofa hefur sektað bílastæðafyrirtækin EasyPark um 500 þúsund og Parka um eina milljón vegna upplýsingagjafar og viðskiptahátta fyrirtækjanna ...
Scottish exam pass rates rise as students find out results
📅 04.08.2026 👁️ 1
Scottish exam pass rates rise as students find out results
More than 148,000 learners across the country received their results as details of this year's pass rates were published.
Opnar sig um þung­lyndi og depurð - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Opnar sig um þung­lyndi og depurð - Vísir
Martin er þekktastur fyrir fantasíuseríuna Söng um ís og eld, sem var aðlöguð að sjónvarpsskjánum í hinum geysivinsælu Krúnuleikum (2011-19), og á far...
Parents arrested after alleged assault on two-year-old in Tenerife restaurant
📅 04.08.2026 👁️ 1
Parents arrested after alleged assault on two-year-old in Tenerife restaurant
A man and woman have been arrested after their two-year-old son was allegedly assaulted inside a restaurant in Santa Cruz de Tenerife.The incident rep...
Stefnir í aðra vaxtahækkun
📅 04.08.2026 👁️ 1
Stefnir í aðra vaxtahækkun
Stefnir í aðra vaxtahækkun Verð­bólga er þrálát þrátt fyr­ir kóln­un í hag­kerf­inu. Raun­verð hús­næð­is lækk­ar skarpt. Líklegt er að stýrivextir Se...
Lýsti mikilli ör­væntingu áður en hún myrti börnin sín - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Lýsti mikilli ör­væntingu áður en hún myrti börnin sín - Vísir
Þar að auki sagðist Clancy hræðast það að snúa aftur til vinnu sem hjúkrunarfræðingur á fæðingardeild. Þetta er meðal þess sem kom fram í dómsal í Mas...
Anna gerir stólpagrín að hneykslaða fólkinu: „Þegar ég var komin í gólfið gat ég ekki haldið hlátrinum í mér“
📅 04.08.2026 👁️ 1
Anna gerir stólpagrín að hneykslaða fólkinu: „Þegar ég var komin í gólfið gat ég ekki haldið hlátrinum í mér“
Vélstjórinn og samfélagsrýnirinn Anna Kristjánsdóttir gerir stólpagrín að viðbrögðunum við lögregluaðgerðinni á Akureyri um helgina þar sem unglingar ...
'Just joking' added to fan's England World Cup win tattoo
📅 04.08.2026 👁️ 1
'Just joking' added to fan's England World Cup win tattoo
Sean Carrington says he is more bothered about England not winning than about his tattoo.
Skaflinn í Esjunni stendur enn
📅 04.08.2026 👁️ 1
Skaflinn í Esjunni stendur enn
Skaflinn í Gunnlaugsskarði er eins konar óformlegur mælikvarði höfuðborgarbúa á tíðarfar. Kona sem gekk á Esjuna í fyrrakvöld segir heldur lítið eftir...
Bandero-liðar bíða ákvörðunar Útlendingastofnunar
📅 04.08.2026 👁️ 1
Bandero-liðar bíða ákvörðunar Útlendingastofnunar
Bandero, skip Paul Watson samtakanna, hefur verið kyrrsett í Sundahöfn síðan á föstudagsmorgun eftir að Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjó...
Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólar­hringa - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólar­hringa - Vísir
„Það er bara þannig sem við viljum hafa þetta,“ segir Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Auk þess hafi engar ábendingar um minka á ferli se...
Dó ekki ráða­laus þegar filipíska löggan mætti - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Dó ekki ráða­laus þegar filipíska löggan mætti - Vísir
Ólafur er fæddur árið 1998 og samhliða tónlistinni er hann löggiltur fasteigna og skipasali. Hann ræddi við blaðamann um plötusnúðastarfið og Asíu-ævi...
Dó ekki ráða­laus þegar filippseyska löggan mætti - Vísir

Yfir­gefa landið mögu­lega um borð í Bandero - Vísir
📅 04.08.2026 👁️ 1
Yfir­gefa landið mögu­lega um borð í Bandero - Vísir
Áhöfn Bandero hefur að mestu verið haldið um borð við Reykjavíkurhöfn síðan Landhelgisgæslan stöðvaði för skipsins á fimmtudagskvöldið eftir að það ha...