Eyvindur Karlsson, sem starfaði sem verktaki við þýðingar hjá Sjónvarpi Símans í hartnær tvo áratugi, gagnrýnir fyrirtækið fyrir svör þess um uppsagnir og gervigreind. Sakar hann fyrirtækið um orðhengilshátt.Í gær greindi DV frá umræðu á netinu um að Sjónvarp Símans hefði sagt upp þýðendum og skipt þeim út fyrir gervigreind. Í svari við fyrirspurn DV hafnaði Síminn þessu og sagði að þó að gervigreind væri notuð við þýðingar væri áfram einn fastráðinn starfsmaður við þýðingar og að verktakaþjónusta yrði keypt áfram eftir þörfum eins og áður.
Fyrrverandi þýðandi hjá Sjónvarpi Símans stígur fram – „Þetta er auðvitað bull hjá Símanum“