Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Hann segist gera það sóma síns vegna en hann telur flokk sinn kominn í „undarlegt samband við afturhaldsöfl í Vinstri grænum og Framsóknarflokknum“. Þetta kemur fram í grein Vilhjálms sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir já á morgun „sóma síns vegna“