Lögregluyfirvöld í Belgíu segja að sífellt fleiri fyrrverandi hermenn frá ríkjum á borð við Írak og Afganistan séu nú viðriðnir smygl á fólki til Bretlands á smábátum frá ströndum Belgíu. Fram kemur að þessir menn hiki ekki við að hóta lögreglu til að koma í veg fyrir afskipti hennar af bátaferðum yfir Ermarsundið til Bretlands.
Þetta kemur fram í umfjöllun GB News þar sem haft er eftir Nicholas Paelinck, lögreglustjóra í Belgíu, að lögregla hafi áður gert slíka báta ósiglingarhæfa áður en lagt væri af stað. Hann segir það nú orðið of hættulegt fyrir jafnvel lögregluna að nálgast þessa báta á sumum svæðum vegna manna með hernaðarreynslu sem umkringja bátana til að halda lögreglu frá með valdi og hótunum.
Samkvæmt frásögn Paelinck fá lögreglumenn hótanir frá þessum hópum og dæmi eru um að lögreglubifreiðar séu skemmdar með bareflum. Í kjölfarið hefur lögreglan ákveðið að hætta aðgerðum á ákveðinni strönd af ótta við glæpamennina.
Fundu stríðsvopn og skotfæri
Í fréttinni kemur einnig fram að lögregla hafi fundið stríðsvopn og skotfæri í tjaldbúðum flóttamanna á svæðinu og að yfirvöld telji aðeins tímaspursmál hvenær lögreglumenn verði fyrir alvarlegri árás.
Belgísk yfirvöld segja að aukin afskipti lögreglunnar í Frakklandi hafi orðið til þess að hópar sem sérhæfa sig í að smygla fólki til Bretlands á slíkum bátum færi starfsemi sína í auknum mæli yfir til Belgíu. Smábátar sem áður voru oftast settir á flot frá norðurströnd Frakklands fari nú í vaxandi mæli frá Belgíu.
Ástæðan fyrir því að svo eftirsóknarvert er að komast til Bretlands er vegna laga þar í landi sem skylda bresk yfirvöld til að hýsa og fæða þá.
Bresk stjórnvöld gagnrýnd
Í umfjölluninni er einnig rætt við Rob Bates hjá Centre for Migration Control sem segir þróunina sýna að bresk stjórnvöld hafi ekki tekið þessi mál nægilega alvarlega. Hann segir að margir þeirra sem komi til Bretlands á þennan hátt hafi alist upp við ofbeldi og sumir hafi mikla reynslu af bardögum og hernaði.