Zbigniew Ziobro, fyrrverandi dómsmálaráðherra Póllands, sem er eftirlýstur fyrir fjölda afbrota í heimalandinu, er flúinn til Bandaríkjanna.
Pólsk hægrisinnuð sjónvarpsstöð, Republika, birti viðtal við Ziobro í gær frá Bandaríkjunum. Hann flúði þangað frá Ungverjalandi þar sem hann fékk pólitískt hæli undir verndarvæng Viktors Orban fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands.
Ziobro er eftirlýstur fyrir að misnota vald sitt, skipulagða glæpastarfsemi og misnotkun fjármuna. Hann varði fjármunum sem ætlaðir voru fórnarlömbum glæpa til kaupa á ísraelsku njósnaforriti til að fylgjast með pólitískum andstæðingum. Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsi í Póllandi.
Marcin Romanowski, aðstoðardómsmálaráðherra Póllands, er einnig grunaður um brot og á hann að hafa dregið sér um 40 milljónir evra.
Óljóst hvernig Ziobro komst til Bandaríkjanna
Peter Magyar, nýkjörinn forsætisráðherra Ungverjalands, lýsti því yfir daginn eftir stórsigur á Orban í þingkosningunum í apríl að Ungverjar myndu ekki halda hlífiskildi yfir fólki sem væri eftirlýst annars staðar. Hann tilgreindi Ziobro og Romanowski í því sambandi.
Það er óljóst hvernig Ziobro komst til Bandaríkjanna þar sem pólsk stjórnvöld höfðu ógilt vegabréf hans. Vefmiðillinn Onet greindi frá því að hann hefði fengið bandaríska vegabréfsáritun sem blaðamaður Republika. Sjónvarpsstöðin greindi síðan frá því að hann hefði verið ráðinn sem stjórnmálaskýrandi stöðvarinnar í Bandaríkjunum.
Waldemar Zurek, núverandi dómsmálaráðherra Póllands, sagði á X að stjórnvöld ætluðu að krefjast skýringa frá Ungverjalandi og Bandaríkjunum á því hvernig Ziobro tókst að ferðast skilríkjalaus til Bandaríkjanna. Pólsk yfirvöld ætla að fara fram á að hann verði framseldur frá Bandaríkjunum ef rétt reynist að hann sé þar.