Seðlabanki Evrópu svipti á fimmtudag hulunni af nýrri hönnun sem mun prýða evruseðlana. Tíu ólíkar útfærslur hafa verið birtar, en síðar á árinu verður ein þeirra valin.
Þetta er í fyrsta sinn frá því evruseðlarnir voru teknir í notkun árið 2002 sem hönnun þeirra er breytt að ráði.
Hönnunin á sér nokkurn aðdraganda. Rúmlega fjögur ár eru liðin síðan áformin voru kynnt. Síðan þá hafa hinir ýmsu rýnihópar komið sér saman um nokkur ásættanleg þemu í samráði við almenning.
Útgáfurnar tíu, sem hafa verið fullhannaðar, eru ýmist í þemanu Fuglar og vatn eða Evrópsk menning. Verði síðarnefnda þemað fyrir valinu verða andlit Mariu Callas, Ludwig van Beethoven, Mariu Curie, Miguel de Cervantes, Leonardo da Vinci og Berthu von Suttner á seðlunum.
Liðin eru 45 ár frá því íslenska seðlaröðin var kynnt til leiks. Flest nágrannaríki hafa endurnýjað sína seðla síðan þá. Í samtali við fréttastofu í fyrra sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að engin áform væru þó uppi um að endurhanna seðlana.