Friður sé með yður

Jón Magnússon skrifar:
Jesús sagði ítrekað við lærisveina sína sérstaklega eftir upprisuna „Friður sé með yður."
Það ætti að vera yfirvöldum íslensku þjóðkirkjunnar ljóst, að það stuðlar ekki að friði og eindrægni í samfélaginu, að kirkjan taki upp virka boðun og áróður fyrir hinsegin og trans samfélagi.
Ég tel upp á að flestir séu sammála því, að það sé með öllu óeðlilegt að auglýsingar kauphéðna eins og t.d. Kóka Kóla, SS, Bauhaus og Býkó eða annarra séu málaðar á gangstéttir við kirkjur landsins og auglýsingaskilti þeirra væru áberandi þegar fólk vildi eiga fund með almættinu í kirkjunni sinni.
Gildir ekki það sama um auglýsingar fyrir trans- og hinsegin hugmyndir?
Einhverjir tóku sig til og máluðu íslenska fánann á kirkjutröppur við Grafarvogskirkju, þar sem hinsegin og transfáninn höfðu áður verið málaðir. Biskupinn yfir Íslandi segir það árás á minnihlutahópa.
Sé svo hvers konar árás var þá það þegar biskupinn stóð fyrir því á sínum tíma að mála trans- og hinseginn fánann á kirkjutröppurnar. Var það e.t.v. árás á meirihlutahópa?
Af hverju fá kirkjugestir ekki að vera í friði. Er ekki í hæsta máta óeðlilegt að fólk þurfi að stíga á einhverja auglýsingu eða lífsskoðun óviðkomandi kristinni trú þegar það fer til fundar við almættið.
Þarf biskupinn yfir Íslandi ekki að hugsa sinn gang til að hann geti stuðlað að því að við virðum hvort annað og alla. Ekki bara minnihlutahópa. Til þess að boðskapur Jesú komist til skila og kirkjan standi fyrir og stuðli að þeim friðarboðskap sem hugmyndafræði kristninnar byggir á.
Pax vobiscum - Friður sé með yður.