Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru fullar og rúmlega það eftir hrekkjavökunóttina að því er fram kemur í dagbók lögreglu eftir nóttina.
Mestur erill var á lögreglustöð 1 sem sinnir Austurbæ, Vesturbæ, Miðbæ og Seltjarnarnesi. „Frávik í hegðun virðast þemað,“ segir í dagbókinni.
Vopnaburður í unglingapartíi
Lögregla var kölluð að unglingapartíi sem fór úr böndunum. Tveir voru þar kærðir fyrir vopnaburð og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu.
Þá hrækti einn í andlit sjúkraflutningsmanna.
Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem var án réttinda en hafði valdið umferðaróhappi, unnið eignaspjöll, ekið undir áhrifum fíkniefna ásamt öðrum smærri umferðarlagabrotum.
Þá voru höfð afskipti af mörgum í skemmtanalífinu í miðborginni fyrir það sem lögregla kallar frávik í hegðun og segir hafa virst þema næturinnar.
Þrír voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar á ráni og meiriháttar líkamsárás.
Stórfelld líkamsárás og eldur
Öllu rólegra var í umdæmum lögreglustöðva 2–4.
Í umdæmi Hafnarfjarðar og Garðabæjar var einn vistaður vegna rannsóknar á stórfelldri líkamsárás. Í Grafarvogi, Árbæ eða Mosfellsbæ er heimilisofbeldi til rannsóknar auk þess sem tvö umferðarslys urðu.
Líkt og greint hefur verið frá kviknaði eldur í íbúð í Norðlingaholti á tólfta tímanum í gær. Einn var fluttur á slysadeild. Slökkvistarfi lauk um klukkan eitt í nótt.