Íhaldsmaðurinn Spencer Pratt hefur svarað fyrir sig eftir að spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel gerði grín að honum fyrir að tapa í borgarstjórakosningunum í Los Angeles.
Kimmel hóf þáttinn á þriðjudagskvöldið á því að hæðast að fullyrðingum um að svindl hefði átt sér stað í kosningunum og rifjaði það upp að Pratt hefði heitið því að yfirgefa borgina ef hann tapaði.
„Ég veit að það gæti verið þröngt í búi hjá þér núna, sérstaklega þar sem fjárframlög frá aðilum utan ríkisins [Kaliforníu] eru að klárast,“ sagði Kimmel og hélt svo áfram: „Það er dýrt að flytja svo við ákváðum að hjálpa þér með því að leigja fyrir þig flutningabíl. Starfsfólk okkar eyddi öllum deginum í að skreyta bílinn fyrir þig og allir munu sjá þig og veifa þér þegar þú ferð.“
Á flutningabílnum mátti sjá mynd af Pratt þar sem hann virðist vera grátandi og með myndinni fylgir textinn: „Nýsigraður“.
Pratt svaraði fyrir sig í gær með því að deila myndbandi af rústum heimilis síns sem brann til kaldra kola í illviðráðanlegum gróðureldum sem rændu þúsundir íbúa Los Angeles heimilum sínum í fyrra. Pratt skrifaði til Kimmel:
„Jimmy Kimmel, ég reikna með að það hafi farið fram hjá þér að ég þarf engan flutningabíl, ég á ekkert eftir til að pakka.“
Jimmy Kimmel i guess you missed the part of the story i don’t need a U-Haul…I have nothing left to pack 🤷♂️ pic.twitter.com/eAHqKiBJaI
— Spencer Pratt (@spencerpratt) June 10, 2026
Áður en Pratt sneri sér að stjórnmálum var hann fyrst og fremst þekktur fyrir raunveruleikaþættina The Hills. Eftir að hann missti heimili sitt í Pacific Palisades í fyrra gagnrýndi hann viðbrögð yfirvalda við gróðureldunum harðlega og kenndi borgarstjóranum, Karen Bass, og ríkisstjóranum, Gavin Newsom, um hvernig tekist var á við þessar hamfarir. Pratt bauð sig fram fyrir repúblikana en laut í lægra haldi í forvalinu fyrir sitjandi borgarstjóra og borgarstjórnarfulltrúanum Nithya Raman, en báðar koma þær úr röðum demókrata.
Það munaði þó ekki miklu að Pratt hefði fengið færið á að takast á við Bass um borgarstjórastólinn en hann hlaut 25,5 prósent greiddra atkvæða og munaði því ekki miklu á honum og Raman sem hlaut 29 prósent. Brass var nokkuð örugg áfram með 34,3 prósent.
Nokkrum klukkustundum eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir birti Pratt óræða færslu á samfélagsmiðlum, mynd sem sýnir önd synda í rólegheitunum. Hann hefur ekki útskýrt hvað hann meinti með myndinni en hún birtist þegar stuðningsmenn hans voru að fara mikinn í netheimum yfir meintum kosningasvikum.
— Spencer Pratt (@spencerpratt) June 9, 2026