Dómsmálaráðherra Frakklands, Gerald Darmanin, kallaði saman saksóknara landsins í dag og fól þeim að fara yfir 70.000 mál sem tengjast kynferðisbrotum gegn börnum. Þeir hafa frest til 14. júlí til að fara yfir málin.
Mikil reiði ríkir í Frakklandi eftir að lík 11 ára gamallar stúlku fannst í yfirgefinni korngeymslu. Sá sem grunaður er um morðið hafði áður nokkrum sinnum verið tilkynntur til lögreglu fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Þau mál voru ýmist felld niður eða ekki rannsökuð til hlítar.
Síðasta málið var tilkynnt í ágúst og hafði maðurinn ekki enn verið kallaður til yfirheyrslu. Hinn grunaði er faðir vinkonu stúlkunnar.
Dómsmálaráðherrann segir að með yfirferð saksóknaraembættanna sé ætlunin að komast að því hvort meðhöndlun lögreglunnar á tilkynningum um manninn sé afmarkað mál eða hvort vinnubrögð sem þessi séu kerfisbundin.
Dómsmálaráðherrann baðst afsökunar á því á föstudag hversu illa hefði verið tekið á málunum en neitaði alfarið að segja af sér.
Aðeins 7 prósent mála sem tengjast kynferðisbrotum gegn börnum í Frakklandi lýkur með sakfellingu, samkvæmt CIIVISE, sjálfstæðri nefnd gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.